VeiðiViðskipti

Ráð­herra mátti sín lítils gegn ríkinu

Árni Sæberg

2025-03-12 14:10

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Íslenska ríkið hefur verið sýknað af öllum kröfum Ásthildar Lóu Þórsdóttur, menntamálaráðherra, og eiginmanns hennar. Þau kröfðust bóta úr hendi ríkisins vegna meintra mistaka fulltrúa sýslumanns við úthlutun eftir uppboð á heimili þeirra árið 2017.

Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á öðrum tímanum í dag. Mbl.is greindi frá niðurstöðu málsins.

Ásthildur Lóa segir í samtali við Vísi lögmaður hennar hafi leiðbeint henni tjá sig ekki mikið um niðurstöðu dómsins áður en þau hafa kynnt sér hana í þaula. Hún vill þó árétta óumdeilt sýslumanni beri taka tillit til fyrningar vaxta þegar úthlutað er eftir uppboð.

Fyrst stefndu þau hjón Arion banka, sem fékk umrædda peningaupphæð. Þau unnu í héraði en í Landsrétti var fallist á kröfur bankans. Hæstiréttur féllst ekki á taka málið fyrir.

Töldu sig hlunnfarin um tæpar 11 milljónir króna

Þau hjón báru einmitt fyrir sig í málarekstrinum Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefði haft af þeim tæplega ellefu milljónir króna með því taka ekki tillit til fyrningar vaxta.

Málið rekja til þess árið 2017 var hús hjónanna selt á uppboði. sögn þeirra var ekki gert ráð fyrir fyrningu vaxta upp á 10,7 milljónir. Þau hafi bent á það, en það hefur aldrei fengist viðurkennt. Fjallað var um aðalmeðferðina á Vísi þegar hún fór fram fyrir sléttum mánuði.

Réttarkerfið rúið trausti ráðherra

Í lok aðalmeðferðar fékk Ásthildur Lóa ávarpa réttinn, sem er ekki venjan í dómsmálum hér á landi.

Í ræðu sinni minntist Ásthildur Lóa á ýmsa þætti málsins sem fóru fyrir brjóstið á henni.

Til mynda minntist hún á það hún hafi einu sinni tekið upp fund sinn við bankann. Hún viðurkenndi hún hafi ekki fengið leyfi fyrir þeirri upptöku. Ástæðan hafi verið hún hafi einfaldlega viljað eiga hana til skilja málið betur. Þessi upptaka hafi verið lögð fram þegar málið gegn bankanum var tekið fyrir, en þá hafi einhver leitt líkur því um sviðsetta upptöku væri ræða. Það fór fyrir brjóstið á Ásthildi.

Við höfum verið máluð upp eins og vesenisfólk. Þannig er fólk málað upp sem berst fyrir rétti sínum, sagði Ásthildur Lóa.

Fólk sem sækir rétt sinn er orðið þreytt eins og laxinn á stönginni.

Þá sagði hún þessi málaferli hefðu dregið úr trausti sínu á dómskerfinu.

Traust okkar á dómskerfinu orðið afskaplega lítið. Það nær ekki nokkurri einustu átt hægt tefja mál út í hið óendanlega. Á meðan tifar klukkan, sagði Ásthildur. Varnarlaust fólk í mjög erfiðri stöðu hefði engar leiðir til bregðast við slíku.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 455 eindir í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 30 málsgreinar eða 96,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.