Viðskipti

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?

Jón Jósafat Björnsson

2025-04-02 07:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Flest okkar fara ekki í gegnum daginn, hvað þá vikuna, án þess selja eitthvað. Við seljum börnunum okkar þá hugmynd fara í úlpu þegar það er kalt eða makanum hafa frekar salat í matinn en kjöt. Góð samskipti byggja meðal annars á málamiðlunum og þá getur verið farsælla selja hugmyndina í stað þess þvinga hana upp á viðkomandi.

Sölufólk á Íslandi. Þó flest okkar selji hugmyndir jafnvel án þess leiða hugann því, er til hópur fagfólks sem hefur það aðalstarfi selja vörur og þjónustu. Þessi hópur telur þúsundir og gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi. Ég hef lengi velt fyrir mér ímynd sölustarfsins á Íslandi, en almennt er ekki mikið fjallað um sölu í fjölmiðlum eða almennri umræðu. Mannauðsmál eru til umræðu, og mannauðsfólk á öflugt félag sem heitir Mannauður. Gott starf er unnið hjá ÍMARK fyrir markaðsfólk, og stjórnendur hafa Stjórnvísi. Engin samtök halda utan um þau sem starfa í sölu, er haldin sérstök verðlaunahátíð fyrir þá sem skara fram úr í faginu.

Hvers virði er vara ef hún er aldrei seld? Fyrir nokkrum árum átti ég langt samtal við einn af öflugustu fjárfestum landsins. Hann var þeirrar skoðunar það sem helst hamlaði nýsköpun og útrás íslenskra fyrirtækja væri skortur á faglegri söluþekkingu. Hann benti á við tölum af meiri virðingu um uppfinningafólk, frumkvöðla og forritara en sölufólk. Í samtali okkar spurði hann mig: Hvers virði er vara ef hún er aldrei seld?

Fordómar. Ég hef starfað við sölu og sölustjórnun í fjölda ára, en þrátt fyrir það hef ég staðið sjálfan mig því hafa ákveðna fordóma gagnvart faginu. Fyrir rúmum áratug starfaði ég í framleiðslufyrirtæki sem rak meðal annars söluskrifstofu í Bandaríkjunum. Í það teymi réð ég einstakling sem hafði lokið viðskiptafræðinámi þar í landi með það markmiði starfa í sölu. Hann átti tvo bræður sem voru læknar og einn sem var lögfræðingur. Í hans huga var sölustarfið ekki síður mikilvægt en störf bræðranna. Ég verð viðurkenna áður en ég kynntist honum, leit ég ekki á þessi störf sem jafn mikilvæg.

Starf fyrir kanínustrákinn. Í barnabókinni Starf fyrir kanínustrákinn veltir stórfjölskyldan upp mögulegum störfum fyrir nýjasta meðlim kanínufjölskyldunnar og giskar á hvað hann verði þegar hann verður stór. Þau nefna störf eins og lögregluþjón, trúð, kúreka, flugmann, slökkviliðsmann, lestarstjóra, ljónatemjara, póstburðarmann, sjoppueiganda, strandvörð, bónda og lækni. Engum datt í hug hann yrði sölumaður. Ég velti fyrir mér hvort svipuð umræða eigi sér stað í íslenskum fjölskyldum og hvort það stafi af litlum skilningi á sölustörfum og mikilvægi þeirra.

Þegar við skoðum rannsóknir sem snúa virðingu og trausti starfsgreina, sjáum við hjúkrunarfræðinga, lækna, kennara, vísindafólk, lögreglu, verkfræðinga, dómara, sjúkraliða og fjölmiðlafólk gjarnan raða sér inn á topp tíu listana. Sölustarf fer sjaldan hátt í slíkum könnunum.

Skemmtilegt og vellaunað starf. Eftir hafa stundað sölumennsku, sölustjórnun og þjálfað sölufólk hef ég kynnst ýmsum hliðum á sölu. Það er líka rétt taka fram störf sem tengjast sölu eru afar fjölbreytt, allt frá almennri þjónustusölu til sérhæfðrar söluráðgjafar eða viðskiptastýringar. Mörg þessara starfa eru vel borguð og þeim fylgja oft bónusar og ferðalög, sem mörgum finnast eftirsóknarverð. Mannlega hliðin er þó það sem flestum þykir skemmtilegast, því í þessu starfi kynnist maður fjölmörgum viðskiptavinum, og sumir þeirra verða góðir kunningjar eða jafnvel vinir.

Til þess lífskjör á Íslandi verði áfram með þeim bestu í heimi, þurfum við fjölbreytt atvinnulíf og öfluga menntun. Við þurfum halda áfram ýta undir nýsköpun og framsækni í framleiðslu, en um leið huga þeim sem eiga opna viðskiptatengsl og koma afurðum og hugmyndum okkar í verð.

Höfundur er söluráðgjafi og sölustjóri Dale Carnegie.

Nafnalisti

  • Dale Carnegiefrumkvöðull
  • Góð samskiptiráðgjafarfyrirtæki
  • Hvers virðihreyfi-félags- og andlegur þroski fyrir börnin í Háteigsskóla

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 681 eind í 37 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 89,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.