Stjórnmál

Vaka stendur með Mennta­vísinda­sviði í verki

Gunnar Ásgrímsson

2025-03-31 11:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þegar haustmisserið hófst síðasta ágúst áttum við vera komin í glæsilega endurbætta byggingu Háskóla Íslands, Sögu. En raunin varð önnur. Við vorum enn föst í Stakkahlíðinni, og það sem verra var, helmingur húsnæðisins hafði verið afhentur Listaháskóla Íslands. Við þurftum læra í kennslurýmum hér og þar, í öðrum byggingum og jafnvel í kirkjum um hríð. Þetta var niðurlægjandi staða fyrir svið sem ber ábyrgð á menntun framtíðarkennara landsins.

Við í Vöku rétt eins og allir aðrir stúdentar Menntavísindasviðs vorum og erum ósátt. En ólíkt öðrum ákváðum við láta ekki nægja birtast óvænt í umræðum viku fyrir kosningar. Við tókum til handa og fórum vinna.

Vinna, ekki bara loforð

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég tók við sem sviðsráðsforseti Menntavísindasviðs var kortleggja það sem brýnast væri bæta. Í gegnum baráttu, sem er ekki alltaf jafn sýnileg, bæði í sviðsráði og Stúdentaráði sem og í öðrum skipulagseiningum eins og Söguhópnum, hefur okkur tekist tryggja fjölmörg mikilvæg mál fyrir okkar nemendur:

Vaka tryggði gert verði ráð fyrir hreiðri, aðstöðu fyrir börn stúdenta, í Sögu. Eitthvað sem hefði ekki orðið ef ég hefði ekki fært mál fyrir því í Söguhópnum.

Vaka tryggði nemendafélög fái loks aðgang sameiginlegri fundaraðstöðu og geymslum í Sögu, sem þau hafa verið án síðan Hamar fór undir Listaháskólann.

Ég lagði fram tillögu í Stúdentaráði í febrúar um auka sveigjanleika í vettvangsnámi kennaranema. Tillaga sem var samþykkt einróma. Skrifstofa SHÍ og fulltrúar Vöku í sviðsráði vinna því fylgja þessu markmiði eftir.

Sem fulltrúi nemenda í stjórn Menntavísindasviðs hef ég kallað eftir auknum fyrirsjáanleika í skipulagi náms, og unnið því stundatöflur verði birtar tímanlega fyrir næsta haust. Það er eitt af mínum meginmarkmiðum því fram á næsta starfsári.

þegar kennslu lýkur í vor verður Stakkahlíðinni pakkað niður og flutningurinn í Sögu fullu lokið fyrir næsta haust. Háskólinn dró flutninginn allt of lengi, og aðstæður á þessu skólaári hafa verið ólíðandi, en þegar á hólminn verður komið í Sögu verða aðstæður stúdenta á Menntavísindasviði mun betri en ella, þökk vinnu Vökuliða.

Röskva mætir seint og tómhent

Það er holur hljómur í Röskvu, sem hefur þar til núna ekki lagt fram eina tillögu á stúdentaráðsfundi á þessu starfsári um kennsluhætti eða aðstæður á Menntavísindasviði, eða flutning þess í Sögu, fara allt í einu berja sér á brjóst rúmlega viku fyrir kosningar og segja þau standi með Menntavísindasviði. Það þarf meira en vel valdar yfirlýsingar rétt fyrir kjördag til hljóta traust stúdenta. Það traust byggist á því fulltrúar vinni fyrir hagsmuni sviðsins allt árið um kring, og það hefur Vaka gert og mun halda áfram gera.

Framtíðin skiptir máli

þegar flutningurinn í Sögu er loksins verða veruleika skiptir öllu máli rétt fólk sitji áfram við borðið. Fólk sem þekkir málin, hefur unnið bættum hagsmunum stúdenta og mun halda áfram gera það. Við í Vöku látum verkin tala. Við erum ekki bara bregðast við rétt fyrir kosningar, við höfum starfað samfleytt fyrir stúdenta Menntavísindasviðs frá byrjun.

Á miðvikudaginn og fimmtudaginn kjósa stúdentar sína fulltrúa til leiða hagsmunabaráttu stúdenta á vettvangi SHÍ. Ég hvet alla stúdenta Menntavísindasviðs til þess kjósa þá sem hafa staðið með þeim. Ekki bara í orði, heldur líka á borði.

Kjósum Vöku.

Höfundur er stúdentaráðsliði og oddviti Vöku á Menntavísindasviði.

Nafnalisti

  • Hamaríþróttafélag
  • Röskvastúdentahreyfing
  • Sagasaga af fólki sem í upphafi sagðist vera
  • SHÍstudent. is
  • Vakaungmennafélag

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 619 eindir í 35 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 32 málsgreinar eða 91,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.