Sæki samantekt...
Sjúkratryggingar Íslands harma þau mistök sem fólust í því að sængurkonur fengu sendan reikning á island.is vegna heimafæðinga og vitjana. Ekki á að greiða þessa reikninga.
Sjá einnig: Sængurkonur fengu bakreikning vegna gagnaleka Sjúkratrygginga Íslands — „Þetta er ömurlegt“
Reikningarnir voru sendir út vegna gagnaleka. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir málið ömurlegt og ítrekar að konurnar eigi ekki að greiða reikningana.
„Það birtist inni hjá island.is hjá okkar skjólstæðingum reikningar sem ljósmæður senda til Sjúkratrygginga,“ segir Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, um gagnalekann sem varð í gær. En félagið frétti af honum vegna þess að sængurkonur höfðu samband við sínar ljósmæður.
Leggja áherslu á öryggi gagna
Sjúkratryggingar hafa núna sent frá sér tilkynningu þar sem þessi mistök eru hörmuð:
„Sjúkratryggingar harma að fyrir mistök hafi verið sendar út upplýsingar vegna heilbrigðisþjónustu til afmarkaðs hóps þjónustuþega og heilbrigðisstarfsfólks, í tengslum við breytingu á útsendingu gagna. Vinnsla var stöðvuð um leið og málið uppgötvaðist.
Vert er að taka fram að þær upplýsingar sem sendar voru sneru eingöngu að þjónustu sem þjónustuþegi hafði fengið hjá viðkomandi heilbrigðisstarfsfólki og innihéldu upplýsingar sem þjónustuþegi og heilbrigðisstarfsmaður höfðu rétt á að fá.
Sjúkratryggingar leggja ríka áherslu á öryggi gagna og líta málið alvarlegum augum. Búið er að greina hvað gerðist og gera viðeigandi ráðstafanir við útsendingu gagna til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.“
Nafnalisti
- Sjúkratryggingar ÍslandsSÍ
- Unnur Berglind Friðriksdóttirformaður Ljósmæðrafélags Íslands
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 241 eind í 14 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,57.