Engin virkni í sprungunni og um­fangs­mikil lögregluaðgerð

Jón Þór Stefánsson

2025-04-02 18:11

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Engin virkni hefur verið í gossprungunni á Reykjanesskaga síðan síðdegis í gær, þó kvika flæði enn inn í kvikuganginn sem er lengsti frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesskaga 2021. Við verðum í beinni frá Reykjanesskaga í kvöldfréttunum og ræðum við sérfræðing um framhaldið.

Þar heyrum við einnig frá bæjarstjóra Grindavíkur um hvernig það var sjá kviku koma upp fyrir innan varnargarða, og tökum stöðuna í Vogum á Vatnsleysuströnd, en kvikugangurinn teygir sig í átt bænum og hefur færst nær.

Við ræðum einnig við fulltrúa lögreglunnar um umfangsmikla og alþjóðlega lögregluaðgerð þar sem hátt í 80 menn voru handteknir, grunaðir um vera viðriðnir risastóra barnaníðssíðu á netinu. Tveir mannanna eru íslenskir.

Rætt verður við framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins um tollamál, en Donald Trump kynnir í kvöld tollastefnu sína, sem mikil óvissa ríkir um. Við kynnum okkur óvenjulegan viðauka við varnarsamning Íslands við Bandaríkin, drögum fram sjónarmið þeirra sem vilja einkaþotur burt úr Reykjavík og þeirra sem vilja þær áfram og heyrum nýtt lag sem gerði allt tryllt þegar það var frumflutt í Fossvogsskóla.

Í sportpakkanum heyrum við svo frá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur landsliðskonu í fótbolta. Hún segir framtíðina óráðna en nýtur lífsins sem stendur í Mílanó, þar sem hún spilar. Í Íslandi í dag kynnum við okkur svo páskaeggjaæðið sem senn fer í hönd, en Íslendingar kaupa um eina og hálfa milljón eggja á ári.

Þetta og fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni á slaginu hálf sjö.

Nafnalisti

  • Cecilía Rán Rúnarsdóttirmarkvörður
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 259 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,79.