Stjórnmál

Forseti ekki á móti stjórninni

Ritstjórn mbl.is

2025-03-14 10:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir hún vilji áfram Ísland beiti sér fyrir friði í heiminum, bæði með fordæmi og fortölum. Skoðun hennar óbreytt að því leyti.

Hins vegar geri hún engar athugasemdir við þá stefnu sem mótuð er á vettvangi ríkisstjórnarinnar eða þau fjárframlög sem rétt kjörið Alþingi hefur ákveðið renni til varna Úkraínu, en þar á meðal eru ýmis hernaðargögn, vopn og verjur.

Morgunblaðið leitaði eftir svörum hjá forsetaembættinu í framhaldi af fregnum um Ísland hefði þegar veitt tæpum sex milljörðum króna í hernaðaraðstoð við Úkraínu. Sennilegt er talið stuðningur frá Íslandi, líkt og öðrum Evrópuríkjum, aukist frekar en hitt á komandi árum, fari svo Bandaríkin dragi varanlega úr þeirri aðstoð.

Í aðdraganda forsetakjörs á liðnu ári vék Halla stuðningi Íslands við Úkraínuher í vörn hans gegn innrás Rússa og taldi hann mjög varhugaverðan. Hið herlausa og friðsæla Ísland ætti ekki veita neinum fjármunum til vopnakaupa af nokkru tagi. Aðrir helstu frambjóðendur voru á öðru máli og minntu á Ísland væri ekki hlutlaust ríki.

Svar Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, við spurningu blaðsins var í heild sinni svo:

Forseti áréttar Ísland er friðsæl og herlaus þjóð sem getur haft jákvæð áhrif á umheiminn með því vera það áfram. Ísland hefur áður verið vettvangur friðarumleitana í heiminum. Hingað eru þau sem vilja vinna friði og réttlátum leikreglum velkomin. Forseti og ráðherrar funda reglulega og ræða bæði innanríkis- og utanríkismál. Ráðherrum er kunnug sýn forseta og forseti er upplýstur um viðbótarframlag til varnartengds stuðnings við Úkraínu, sem tengist loforði fyrri ríkisstjórnar. Forseti setur sig ekki á móti stefnu lýðræðislega kjörins Alþingis og ríkisstjórnar. Hún mun hér eftir sem hingað til tala fyrir friði og mannúð og öðrum grunngildum þjóðarinnar, bæði innan lands og utan.

Nafnalisti

  • Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 313 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.