Slys og lögreglumál

Segja flest fórnarlömbin vera konur og börn

Ritstjórn mbl.is

2025-03-16 17:45

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Á fjórða tug hafa látið lífið í árásum Bandaríkjanna á höfuðborg Jemen, Saana, og borgina Radaa. Þá eru að minnsta kosti 101 særðir og sögn heilbrigðisráðuneytisins í Saana, sem er undir stjórn Húta, eru flest fórnarlambanna konur og börn.

Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, Micheal Waltz, segir árásirnar hafa beinst háttsettum leiðtogum innan uppreisnarsamtakanna og fjöldi þeirra hafi látist í árásunum.

Fjölmiðlar sýna börn meðhöndluð á sjúkrahúsi

Um er ræða umfangsmestu hernaðaraðgerð sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað á öðru kjörtímabili sínu og segja ráðamenn árásirnar vera fyrsta skrefið í nýrri sóknaraðgerð til opna aftur fyrir siglingarleiðir um Rauðahaf, sem Hútar hafa hindrað með árásum sínum síðustu mánuði.

Einnig eru þær sagðar vera til þess fallnar senda Írönum skilaboð, en Hútar njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran.

Myndskeið fjölmiðla, sem eru undir stjórn Húta, sýna börn, þar á meðal stúlku með særa fætur vafna í sárabindi, vera meðhöndluð á sjúkrahúsi í kjölfar árásanna.

Aldrei upplifað annað eins

Í viðtali við AFP-fréttaveituna segir einn tveggja barna faðir húsið sitt hafa hrist, glugga hafa splundrast, og fjölskylda hans hafi verið skelfingu lostin á meðan árásunum stóð.

Sagðist hann hafa búið í Saana í tíu ár og heyrt þá reglulega í sprengjuárásum vegna borgarstyrjaldarinnar í Jemen, en það komist ekki í tæri við árásir Bandaríkjanna.

Ég hef aldrei upplifað annað eins áður, segir faðirinn sem kemur fram undir nafninu Ahmed.

Greint hefur verið frá árásir á Húta gætu staðið yfir í fjölda daga og gætu stigmagnast, háð því hvernig uppreisnarmennirnir bregðast við en samkvæmt AFP-fréttaveitunni hafa Hútar heitið viðbrögðum.

Nafnalisti

  • Ahmedfluttur handjárnaður af lögreglu á sjúkrahús í Prayagraj
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Micheal Waltz
  • Saanahöfuðborg
  • Þjóðaröryggisráðgjafi BandaríkjannaJohn Bolton

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 283 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.