Stjórnmál

Bein út­sending frá Bessa­stöðum: Guð­mundur tekur við af Ást­hildi

Jón Þór Stefánsson

2025-03-23 14:43

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Tveir ríkisráðsfundir munu fara fram á Bessastöðum í dag. Fyrirhugað er fyrri fundurinn muni hefjast klukkan 15 en síðari fimmtán mínútum síðar.

Fylgst verður með gangi mála á Stöð 2 Vísi í spilaranum hér fyrir neðan.

Gera ráð fyrir á fyrri fundinum muni Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, veita Ásthildi Lóu Þórsdóttur lausn úr embætti sem barna- og menntamálaráðherra. Hún tilkynnti um afsögn sína á fimmtudagskvöld.

Jafnframt gera ráð fyrir á seinni fundinum verði nýr ráðherra skipaður. Í fréttatilkynningu frá Flokki fólksins er greint frá því Guðmundur Ingi Kristinsson muni taka við embættinu af Ásthildi Lóu.

Hann er einn reynslumesti þingmaður flokksins og hefur setið á Alþingi allt frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna fulltrúa á þing í kosningunum 2017, segir í tilkynningunni.

Þá mun Ragnar Þór Ingólfsson taka við embætti þingflokksformanns af Guðmundi Inga. Og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir mun taka við af Guðmundi Inga sem formaður velferðarnefndar. Þá mun Sigurjón Þórðarson verða fulltrúi flokksins í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.

Flokkur fólksins þakkar Ásthildi Lóu fyrir frábæra frammistöðu í embætti mennta- og barnamálaráðherra þar sem hún hafði náð koma mörgum af baráttumálum flokksins og ríkisstjórnarinnar vel áleiðis. Guðmundur Ingi tekur því við góðu búi og nýtur þess sem Ásthildur Lóa hefur lagt grunninn , segir í tilkynningunni.

Það ríkir fullt traust til Ásthildar Lóu innan Flokks fólksins. Félaga hennar í þingflokknum hlakkar til hana aftur til starfa.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi
  • Kolbrún Áslaugar Baldursdóttirborgarfulltrúi Flokks fólksins
  • Ragnar Þór Ingólfssonformaður
  • Sigurjón Þórðarsonframkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
  • Stöð 2 VísiRás 5 hjá notendum Vodafone, rás 8 hjá notendum Símans

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 235 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.