Khelif óttast ekki Trump: „Þetta hafði djúp­stæð á­hrif á mömmu mína“

Sindri Sverrisson

2025-03-19 11:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hnefaleikakonan Imane Khelif er staðráðin í verja Ólympíumeistaratitilinn í Bandaríkjunum 2028 og lætur forseta landsins, Donald Trump, ekki ógna sér með sinni stefnu og fölsku fullyrðingum um hún karlmaður.

Hin 25 ára Khelif, sem er frá Alsír, vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í París síðasta sumar en þurfti um leið þola alls konar háðsglósur og rangar fullyrðingar um hún væri karlmaður eða trans kona.

Á meðal þeirra sem breiddu út lygar um Khelif voru rithöfundurinn J.K. Rowling, auðkýfingurinn Elon Musk og núverandi Bandaríkjaforseti Trump sem í kosningabaráttu sinni sagði Khelif vera karlmann sem hefði breytt sér í konu.

Þau töluðu um mig án þess hafa staðreyndirnar á hreinu. Það var áfall fyrir mig. Þau töluðu án þess hafa neinar áreiðanlegar upplýsingar, segir Khelif.

Trump verður að óbreyttu enn forseti þegar Ólympíuleikarnir í Los Angeles verða haldnir en Khelif segist í einkaviðtali við ITV, sem birt verður í kvöld, ekki hafa neitt óttast.

Ég skal tala hreint út. Forseti Bandaríkjanna tók ákvörðun um stefnu varðandi trans fólk í Bandaríkjunum. Ég er ekki trans. Þetta hefur ekki áhrif á mig og veldur mér ekki ótta. Það er svarið mitt, segir Khelif í viðtalinu eftir hafa ítrekað hún stefni á önnur gullverðlaun í Los Angeles.

Khelif said she hopes to retain her gold medal at the Los Angeles Olympics in 2028, and would not be intimidated by President Trump, who called her a good male boxer last year.

Full story: https://t.co/csppnnviEO pic.twitter.com/1 j 8 gcFcZgM]]-ITV News (@itvnews) March 18, 2025

Þar segir hún einnig falsfréttaumræðan í kringum þátttöku hennar á Ólympíuleikunum hafi haft mikil áhrif á fólkið sem standi henni næst.

Þetta hafði djúpstæð áhrif á mömmu mína. Hún fór á spítalann nánast daglega. Ættingjar mínir fundu einnig fyrir þessu og þetta bitnaði á allri alsírsku þjóðinni. Þetta gekk lengra en vera eitthvert íþróttamál eða keppni. Þetta þróaðist út í risastóra fjölmiðlaherferð, segir Khelif og bætir við þetta hafi reynst afar erfitt.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Elon Muskforstjóri
  • Forseti BandaríkjannaJoe Biden
  • Imane Khelif
  • ITVbresk sjónvarpsstöð
  • ITV Newsfréttamiðill
  • J.K. Rowlingbreskur rithöfundur
  • Los Angeles Olympics in
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • President Trumpforseti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 368 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,77.