Er þetta síðasta varnarlínan gegn Trump? – Virkar hún?
Ritstjórn DV
2025-03-11 04:10
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Donald Trump er með meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins og virðist hafa fullkomna stjórn á þingmönnum Repúblikana. Á fyrra kjörtímabili sínu sá hann sjálfur um að gera hæstarétt mjög íhaldssaman með skipun dómara í réttinn. En hugsanlega er þessi æðsti dómstóll landsins eini vettvangurinn þar sem hann, og hinn trúi og tryggi fylgisveinn hans, Elon Musk, munu mæta mótspyrnu.
Margir telja að það séu aðeins tvær manneskjur í öllum Bandaríkjunum sem geta komið í veg fyrir að Bandaríkin verði alræðisríki þar sem Trump drottnar sem kóngur með Musk við hlið sér sem krónprins.
Þessar tvær manneskjur eru John Roberts, hinn sjötugi forseti hæstaréttar, og Amy Coney Barrett, 53 ára dómari við hæstarétt. Þau sýndu nýlega að það eru takmörk á hvað þau sætta sig við en spurning er auðvitað hvort þetta hafi verið einstakt tilfelli eða hvort dómstóllinn muni taka sér stjórnsamara hlutverk á næstu fjórum árum?
Þrátt fyrir að sex af níu dómurum réttarins séu íhaldssamir, þá tóku Roberts og Barrett sér stöðu með hinum þremur frjálslyndu dómurum í máli sem var höfðað gegn ríkisstjórn Trump. Meirihluti réttarins komst að þeirri niðurstöðu að ríkið geti ekki látið hjá líða að greiða út um tvo milljarða dollara í þróunaraðstoð við erlend ríki. Þetta snerist um þróunaraðstoð sem hefur nú þegar verið látin í té. Með öðrum orðum, ákvað rétturinn með fimm atkvæðum gegn fjórum að ríkisstjórnin geti ekki snuðað verktaka.
Í öðru máli ógilti hæstiréttur ákvörðun Trump um að reka yfirmann þeirrar stofnunar sem fylgist með störfum ríkisstjórnarinnar.
Ákvörðun hæstaréttar sýnir að fjórir af níu dómurum eru sammála Trump og Musk um að þeir geti nánast hunsað þau lög sem þingið samþykkir. Sem sagt frjálsar hendur og að þeir geti gert það sem þeir vilja.
Nafnalisti
- Amy Coney Barrett48 ára gamall dómari við áfrýjunardómstól 7. svæðis
- Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
- Elon Muskforstjóri
- John Robertsforseti hæstaréttar
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 299 eindir í 13 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 92,3%.
- Margræðnistuðull var 1,65.