Viðskipti

Fram­lengja sam­starf sem hefur komið tugum sprota á lag­girnar

Árni Sæberg

2025-04-03 15:28

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Nova og KlakIcelandic Startups undirrituðu samning um áframhaldandi samstarf um Startup Supernova nýsköpunarhraðalinn til næstu þriggja ára í Grósku á föstudaginn. Hraðallinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2020 og markmið hans er styðja frumkvöðla við þróa viðskiptalausnir sem eiga erindi á alþjóðamarkað.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir hraðallinn hafi skilað þátttakendum miklum árangri frá því honum var hrundið af stað fyrir fimm árum, en í dag séu starfandi 32 fyrirtæki sem hafa farið í gegnum hraðalinn og samanlagt starfi hjá þeim 150 manns.

3,5 milljarða króna tekjur á ári

Rekstrartekjur þessara fyrirtækja nemi um 3,5 milljörðum króna á ársgrundvelli og heildarverðmæti sem hraðallinn hefur skapað því umtalsverð. Meðal sprota sem hafi komist á laggirnar megi nefna Plaio, Quick lookup, Opus Futura og Livey, sem hafi þróað ólíkar hugbúnaðarlausnir, sem hafi vakið verðskuldaða athygli hér heima og erlendis.

Með Startup Supernova erum við skapa vettvang þar sem frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum tækifæri til vaxa og þróa hugmyndir sínar þannig þær verði spennandi fyrir alþjóðlega fjárfesta og sjóði. Það er lykilatriði íslenskir frumkvöðlar hugi strax því hvernig þeir geti skalað upp lausnir sínar til lengra. Við erum virkilega ánægð með halda áfram þessu öfluga samstarfi með Nova næstu þrjú árinþað skiptir máli leiðandi fyrirtæki taki virkan þátt í styðja nýsköpun á Íslandi, er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra KlakIcelandic Startups.

Stökkpallur fyrir nýsköpun

Startup Supernova hefjist fimmtudaginn 15. maí með Klúðurkvöldi í verslun Nova í Lágmúla 9, þar sem opnað verði fyrir skráningar í hraðalinn. Opið verði fyrir umsóknir til og með 5. júní, en þá hefjist Superclass vinnustofan, sem fari fram dagana 5. til 6. júní. vinnustofunni lokinni verði tíu teymi valin til þátttöku í sex vikna viðskiptahraðli, sem hefjist 6. ágúst.

Við erum ótrúlega stolt af þeim árangri sem sprotarnir hafa náð í gegnum Startup Supernova hingað til og hlökkum til styðja áfram við frumkvöðla með stórar hugmyndir. Við hjá Nova elskum nýsköpun og vinnum sjálf stöðugt því hreyfa við nálinni og viljum skora á aðra til gera það líka. Með Startup Supernova höfum við skapað stökkpall fyrir einmitt þetta. Við sjáum líka hraðallinn hefur skapað mikið virði fyrir íslenskt viðskiptalíf og samfélagið allt. Við erum því mjög spennt fyrir áfamhaldandi samstarfi með hraðalinn næstu ár, er haft eftir Þuríði Björgu Guðnadóttur, framkvæmdastjóra markaðssóknar hjá Nova.

Nafnalisti

  • Ásta Sóllilja Guðmundsdóttirframkvæmdastjóri
  • Icelandic Startupsáður Innovit
  • Liveyfyrirtæki
  • Opus Futurafyrirtæki
  • Plaiohugbúnaðarfyrirtæki
  • Quickgerð
  • Startup Supernovaviðskiptahraðall
  • Þuríður Björg Guðnadóttirframkvæmdastjóri Nova upplifunar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 415 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,81.