Bein útsending: Evrópsk öryggis- og varnarmál í breytilegum heimi
Kolbeinn Tumi Daðason
2025-04-03 15:01
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Evrópsk öryggis- og varnarmál í breytilegum heimi er yfirskrift málstofu Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi og Pólska sendiráðsins í Reykjavík, sem haldin er klukkan 15:45 í Veröld, húsi Vigdísar. Viðburðinum er streymt á Vísi.
Í tilkynningu vegna viðburðarins segir að Evrópa standi frammi fyrir stórum spurningum um öryggis- og varnarmál í ört breytilegum heimi.
„Hver eru lykilmál NATO og Evrópusambandsins í því að tryggja áframhaldandi varnir okkar og öryggi. Hver gætu áhrifin verið á Norður-Atlantshafi og á Norðurslóðum?“
Þetta eru meðal þeirra spurninga sem rædd verða á viðburðinum um öryggis og varnarmál sem skipulagður er af Varðberg, Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, og Sendiráði Lýðveldisins Póllands á Íslandi.
Dagskrá að neðan
15:30: Hús opnar. Gestir geta notið kaffis og veitinga í boði Sendiráðs Póllands á Íslandi
16:00: Viðburður hefst.
Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, setning.
Pawel Bartoszek, þingmaður og formaður Utanríkismálanefndar Alþingis, flytur opnunarávarp.
Maciej Stadejek, skrifstofustjóra öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisþjónustu ESB (EEAS) flytur vídeó-ávarp „New Perspectives in EU Security and Defence“.
16:25: Pallborðsumræða 1: Evrópsk öryggis- og varnarmál: Hlutverk ESB og NATO
Magnús Árni Skjöld Magnússon stýrir umræðum.
Þátttakendur:
Jean-Pierre Van Aubel, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálastefnu ESB/Strategic Compass, utanríkisþjónusta ESB (EEAS).
Lucyna Golc-Kozak, staðgengill skrifstofustjóra öryggismálaskrifstofu utanríkisráðuneytis Póllands.
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og fyrrum sendiráðsfulltrúi.
Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis Íslands.
Stutt hlé
17:20: Pallborðsumræða 2: Öryggismál á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum með áherslu á samverkandi hlutverk ESB-NATO.
Rakel Þorbergsdóttir samskiptastjóri og fyrrum fréttastjóri stýrir umræðum.
Þátttakendur:
Claude Véron-Réville, sérstakur erindreki Evrópusambandsins í norðurslóðamálum, utanríkisþjónusta ESB (EEAS).
Bergdís Ellertsdóttir, sérstakur sendiherra Íslands í norðurslóðamálum, utanríkisráðuneyti Íslands.
Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi.
Roy Nordfonn, Lieutenant Colonel (NOR-A), fulltrúi til Íslands, Joint Force Command Brunssum (NATO)
Lokaorð:
Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.
Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Lýðveldisins Póllands á Íslandi.
Nafnalisti
- Aleksander Kropiwnicki
- Bergdís Ellertsdóttirsendiherra Íslands í Bandaríkjunum
- Clara Ganslandt
- Claude Véron-Réville
- Davíð Stefánssonritstjóri Fréttablaðsins
- Erik Vilstrup Lorenzen
- Erlingur Erlingssonhernaðarsagnfræðingur
- Jean-Pierre Van Aubel
- Joint Force Command Brunssum
- Jónas G. Allanssonskrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu
- Lieutenant Colonel
- Lucyna Golc-Kozak
- Maciej Stadejek
- Magnús Árni Skjöld Magnússonvaraþingmaður Samfylkingarinnar
- New Perspectives in EU Security and Defence
- Pawelborgarfulltrúi
- Rakel Þorbergsdóttirfyrrverandi fréttastjóri RÚV
- Roy Nordfonnyfirliðþjálfi 131. flugsveitar við Gumpedalen-herstöðina í Sørreisa
- Strategic Compass
- Vigdíslögfræðingur
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 330 eindir í 31 málsgrein.
- Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 71,0%.
- Margræðnistuðull var 1,43.