Íþróttir

Steini stendur með stráknum: „Hann er mjög vel upp alinn“

Valur Páll Eiríksson

2025-03-20 08:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þetta er bara eins og fótboltinn er. Stundum bara er þjálfarinn vitleysingur og velur þig ekki, segir Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, um son hans Jón Dag Þorsteinsson sem á fyrir höndum landsleik með karlalandsliðinu í kvöld.

Þorsteinn segir þetta hlægjandi en staða Jóns Dags hjá Herthu Berlín í Þýskalandi undanfarnar vikur hefur ekki verið besta.

Hann fékk fágætt tækifæri með liðinu í 51 sigri á Eintracht Braunschweig um síðustu helgi en hafði þá setið sem fastast á tréverkinu síðan í desember.

Hann er búinn vera ótrúlega brattur, þannig séð. Hefur æft vel og gert hlutina mjög fagmannlega þarna úti og hefur alveg fengið hrós fyrir það, þó hann hafi ekki fengið spila, frá fólki í kring fyrir það hversu mikill fagmaður hann er, segir Þorsteinn um son sinn og bætir við:

Ókei, hann spilaði nokkrar mínútur um helgina og var reyndar mjög góður þegar hann kom inn á. En þetta er bara partur af fótboltanum, stundum ertu bara ekki í náðinni. Þó það skipt um þjálfara heldur það bara áfram. Þú þarft bara berja þetta í gegn og sýna það á æfingum þú sért þess verðugur. Ég hef enga trú á öðru en hann komist í gegnum þetta eins og hann gerir alltaf.

Hann er svona vel upp alinn hann fær hrós fyrir fagmennsku sína?

, hann er mjög vel upp alinn, segir Þorsteinn og hlær.

Áhugavert verður sjá hvort Jón Dagur fái tækifæri í fyrsta leik Arnars Gunnlaugssonar við stjórnvölin hjá landsliðinu en Ísland mætir Kósóvó í kvöld.

Leikur Kósóvó og Íslands hefst klukkan 19:45 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Nafnalisti

  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • Eintracht Braunschweigliði Þóris Jóhanns
  • Hertha Berlíneinnig björn, þó skógarbjörn
  • Jón Dagur Þorsteinssonlandsliðsmaður
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum
  • Þorsteinn Halldórssonlandsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 298 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.