Veður

Lengd gossins nú verið ákvörðuð

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 15:26

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Eldgosið sem hófst kl. 9.44, morgni þriðjudagsins 1. apríl, lauk um kl. 16.45 sama dag.

Gosið stóð þar með aðeins yfir í um sex klukkutíma og rekur því lestina hvað varðar lengd einstakra eldsumbrota í þeirri goshrinu sem hófst í mars fyrir fjórum árum.

Þetta er niðurstaða greininga Veðurstofu á efni úr vefmyndavélum, myndatökum úr lofti og gasmælingum.

Enn ekki lokið

Í nýrri tilkynningu er þó tekið fram atburðinum enn ekki lokið, enda mælist áfram nokkur fjöldi smáskjálfta á kvikuganginum, aðallega norður af Stóra-Skógfelli, þó dregið hafi úr virkninni síðasta hálfa sólarhringinn.

Lítil skjálftavirkni mælist á suðurhluta kvikugangsins.

Jarðskjálftavirkni í nærliggjandi eldstöðvakerfum, það er við Reykjanestá, Eldey og Trölladyngju, hefur sömuleiðis dvínað.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 129 eindir í 7 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 85,7%.
    • Margræðnistuðull var 1,49.