Íþróttir

Bruno með þrennu þegar fyrirliði Íslands byrjaði á bekknum - Ensku liðin fóru áfram í kvöld

Hörður Snævar Jónsson

2025-03-13 21:56

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrirliði íslenska landsliðsins, Orri Steinn Óskarsson byrjaði á meðal varamanna þegar Real Sociedad féll úr leik í Evrópudeildinni gegn Manchester United í kvöld.

Fyrstu þrjú mörk leiksins, Sociedad komst yfir en það var Bruno Fernandes skoraði úr tveimur fyrir United. Fernandes tryggði svo United sigurinn með þriðja marki sínu. Sociedad hafði skömmu áður misst mann af velli með rautt spjald.

Diogo Dalot kláraði svo málið með fjórða marki United í uppbótartíma.

Orri fékk tæpar tuttugu mínútur á vellinum en kom sér ekki í færi í kvöld. Orri fékk góð færi í fyrri leiknum en brást bogalistin. United vann einvígið 52 samanlagt.

Tottenham komst einnig áfram Í Evrópudeildinni með sigri á AZ Alkmaar.

Í Sambandsdeildinni er Chelsea komið áfram eftir sigur á FCK í kvöld 1-0 en liðið hafði forystu eftir fyrri leikinn og gerði það sem þurfti.

Nafnalisti

  • AZ Alkmaarhollenskt úrvalsdeildarlið
  • Bruno Fernandesfyrirliði Manchester United
  • Chelseaenskt knattspyrnufélag
  • Diogo Dalotvarnarmaður
  • FCKdanskt stórlið
  • Manchester Unitedenskt knattspyrnufélag
  • Orri Steinn Óskarssonframherji
  • Real Sociedadspænskt lið

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 143 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.