Hæðst að þrútnum og afskræmdum varaforsetanum
Magnús Jochum Pálsson
2025-03-07 11:17
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Eftir afdrifaríkan fund Úkraínuforseta með ráðamönnum Bandaríkjanna í Hvíta húsinu á föstudag hafa myndir af skrumskældum og afar þrútnum JD Vance farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla.
Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti fundaði þar með Donald Trump Bandaríkjaforseta og varaforsetanum JD Vance. Stemmingin varð fljótt óþægileg og orðskiptin kaldranaleg; Trump og Vance sökuðu Selenskí um virðingarleysi og sögðu hann hætta á heimsstyrjöld.
Á einum tímapunkti á spennuþrungnum fundinum spurði Vance: „Hefurðu sagt takk einu sinni?“
Hvíta húsið reyndi að snúa spurningunni upp í styrkleikamerki fyrir Vance á miðlinum X en flestir aðrir virtust sjá hana sem frekjulega og kjánalega. Grínarar alnetsins vöknuðu í kjölfarið til lífsins og skömmu eftir fundinn fæddist nýtt meme.
Einn fyrsti brandarinn sem vakti athygli innihélt mynd af Vance í sófanum í Hvíta húsinu. Á myndinni er búið að blása aðeins út andlit Vance og hann segir: „Þú þarft að þegja tvakk, heþra Þenþkí.“
You have to say pwease and tank you, Mistow Zensky pic.twitter.com/OOVPIdtrVf]]-Barflugnarven 🇻 🇦 (@barflugnarven) February 28, 2025
Grínið vatt upp á sig og með hverjum nýjum brandara varð Vance afskræmdari. Framan voru það litlar breytingar þar sem bollukinnarnar urðu enn stærri eða augnaráðið meira skerandi.
YOU SHOULDA SAID PWEASE pic.twitter.com/PixKbWKrUK]]-Mr. Frog, (Road to Redemption Arc) (@TheMisterFrog) March 1, 2025
Kinnarnar stækkuðu og stækkuðu en síðan tók grínið stakkaskiptum. Vance hóf að umbreytast og nýjar útgáfur af Vance fæddust: svarthærður svartmálaður goth-Vance, skósveina-Vance, Kim Jong Vance og síðhærður þrívíddar-Vance.
I chime in with a
„Haven't you people ever heard of ending the goddamn war?“ pic.twitter.com/Y1 qhQuZYe 0]]-Kσηrαd vs Babylon ♱ (@Konraddin) March 1, 2025
This is rare JD Vance it happens only once in a few decades. Like and share for 99 years of wealth. You will never lack money for travel or trips 🙏 🍀 pic.twitter.com/6 AkeEbHhQ 9]]-Gregory G. Glimmer (@GregoryGlimmer) March 4, 2025
Kim Jong-Vance pic.twitter.com/2 ue 0 Sw 7 inB]]-🇪 🇺 🇺 🇦 Borg Fella 🇺 🇦 🇪 🇺 and 69 others (@BorgFella420) March 6, 2025
You've heard of JD Vance?
Well, here's 3D Vance. pic.twitter.com/iD 1 ALg 2 x 2y]]-Klara (@klara_sjo) March 5, 2025
Einhverjir höfðu orð á því að Vance-straumurinn væri orðinn svo stríður að þeir vissu ekki lengur hvernig varaforsetinn liti út.
I have completely forgotten what the real JD Vance looks like at this point. pic.twitter.com/rMaKcY 5 h 3w]]-Spergler Acolyte (@SperglerAcolyte) March 3, 2025
can’t even conjure up an image of JD vance in my brain anymore all i can see is this pic.twitter.com/4 jwwaqMfTH]]-casual extortion (@thats_canceled) March 3, 2025
Wait Vance actually looks like that I thought it was a photoshop https://t.co/pQCszM0Rdq]]— Basil 🧡 (@LinkofSunshine) March 5, 2025
has anyone written a piece yet on how it is slowly becoming impossible to know what Vance’s real face looks like across the internet https://t.co/j4TrnWancT]]— rat king 🐀 (@MikeIsaac) March 2, 2025
Einn X-verji sagðist ekki geta lengur fylgst með fréttum af heimsmálunum á X (áður Twitter) af því það eina sem kæmi upp á samfélagsmiðlinum væru myndir af Vance. Annar hafði orð á því að sagnfræðingar framtíðarinnar myndu ekki geta greint á milli raunverulegra og falsaðra mynda af varaforsetanum.
twitter is fucking unusable. im trying to get updates on whether world war 3 is on but all im seeing are fat JD vance memes pic.twitter.com/CRDXSil 6 Eb]]-🟨 🟨 Lauris (@lzminsky) March 5, 2025
In a hundred or a thousand years' time, historians will be unable to say for certain what JD Vance actually looked like. pic.twitter.com/Z 21 iJcSz 8w]]-RAW EGG NATIONALIST (@Babygravy9) March 5, 2025
hello everyone i am working on a very important project and i need every jd vance edit like this if you have any please reply with it thank u pic.twitter.com/w 7 IbEaUv 6g]]-elijah daniel (@elijahdaniel) March 3, 2025
Varaforseti sem hirðfífl
Varaforseti Bandaríkjanna er valdalítið embætti og hafa varaforsetar í gegnum tíðina stundum tekið að sér hlutverk eins konar hirðfífla. Sjónvarpsþættirnir Veep með Juliu Louis-Dreyfus fjalla að miklu leyti um þetta.
Dan Quayle, varaforseti George H.W. Bush, stafsetti „potato“ vitlaust í stafsetningarkeppni árið 1992 og fékk aldrei að gleyma því. Joe Biden var alltaf léttur og kátur sem varaforseti rétt eins og Kamala Harris síðar.
Vance hefur áður verið skotspónn gríns netverja en í kosningabaráttunni á síðasta ári varð til sú flökkusaga að hann hefði riðlast á sófa. Rétt eins og grínið sem ræður ríkjum núna varð sófagrínið mjög áberandi í umræðunni í marga daga.
Julio Rosas, blaðamaður íhaldsmiðilsins The Blaze, bar afskræmingargrínið undir varaforsetann í gær og virðist Vance hafa húmor fyrir sjálfum sér því hann sagði grínið vera fyndið.
Vance veit kannski líka að ef hann myndi reyna að hafa stjórn á umræðunni þá myndi það sennilega bara springa í höndunum. Hann veit að eina leiðin til að láta grín hverfa er að leyfa því að deyja náttúrulega.
Nafnalisti
- Babylonkvikmynd
- Borg Fella
- Dan Quaylevaraforsetaefni George H. W. Bush
- Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
- George H.W. Bushfyrrverandi Bandaríkjaforseti
- Gregory G. Glimmer
- Hvíta húsiðauglýsingastofa
- In a
- JDlítill drengur
- JD Vance
- Joe Bidenfyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
- Julio Rosas
- Juliu Louis-Dreyfusgamanleikkona
- Kamala Harrisvaraforseti Bandaríkjanna
- Kim Jong Vance
- Kim Jong-Vance
- KlaraBjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ
- Like and
- Marchaðstoðarmaður Rangnick
- Mistow Zensky
- RAW EGG NATIONALIST
- Redemption Arc
- Roadbeitt kynferðisofbeldi
- Spergler Acolyte
- The Blaze
- Varaforseti BandaríkjannaMike Pence
- Veepgamanþáttaröð
- Vólódímir Selenskíforseti Úkraínu
- Wait Vance
- WellUnioner
- Youtímarit
- YOU SHOULDA SAID PWEASE
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 908 eindir í 46 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 47,8%.
- Margræðnistuðull var 1,62.