Stjórnmál

Jón boðar fleiri afhjúpanir - „Við vitum að það eru fleiri beinagrindur í skottinu hjá ykkur“

Ritstjórn DV

2025-03-24 11:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mál málanna í íslensku samfélagi undanfarna daga hefur verið afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur úr embætti mennta- og barnamálaráðherra vegna sambands hennar og í kjölfarið barneignar með 16 ára pilti þegar hún var sjálf 22 ára, fyrir 35-36 árum Sitt hefur hverjum sýnst í umræðum um málið og um hvernig forystukonur ríkisstjórnarinnar, sérstaklega Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, héldu á málinu. Borið hefur töluvert á ásökunum um liðsmenn Sjálfstæðisflokksins standi á bak við það upplýsingum um málið var komið til fjölmiðla. staðreynd fyrrum tengdamóðir þessa barnsföður Ásthildar Lóu, sem hafði upphaflega samband við forsætisráðuneytið vegna málsins, hefði sent Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins tölvupóst hefur gefið slíkum vangaveltum byr undir báða vængi. Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður Samfylkingarinnar gerði þetta umtalsefni í Facebook-færslu um helgina en í athugasemd við færsluna boðar Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins frekari afhjúpanir um gömul hneykslismál liðsmanna stjórnarflokkanna. Starfsmaður Morgunblaðsins líkar við athugasemdina.

Í færslunni veltir Össur því fyrir sér hvort ekki væri réttast rannsaka þátt Áslaugar Örnu:

Það var forystu Sjálfstæðisflokksins til minnkunar freista þess nota þetta mál til sverta mannorð forsætisráðherra. Sérstaklega þegar haft er í huga skv. RÚV hafði fallin erfðaprinsessa í flokknum upplýsingar um málið. Ætlar RÚV virkilega ekki ganga eftir því Áslaug Árna skýri stöðu sína í málinu? Eftir ásakanir úr Sjálfstæðisflokknum um forsætisráðherra ábyrg fyrir lekum af erindi sem henni barst er það skýlaus krafa Áslaug Arna geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað gerði hún við þær upplýsingar sem henni bárust um málið?

Össur kallar eftir RÚV kanni hlut Áslaugar Örnu

Fleiri afhjúpanir

Áslaug Arna þvertók alfarið fyrir hafa á nokkurn hátt komið málinu að öðru leyti en því hafa fengið tölvupóst frá tengdamóðurinni fyrrverandi þar sem hún hafi óskað eftir því ræða mál við hana sem tengdust Ásthildi Lóu. Áslaug Arna sagðist ekki hafa nokkurn tímann haft samband við konuna og þar af leiðandi aldrei verið í neinum samskiptum við fjölmiðla vegna málsins.

Áslaug Arna svarar fyrir sig í tengdamóðurmálinuFlestir sjá í gegnum samsæriskenningar

Í athugasemd við áðurnefnda færslu Össurar gefur Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins því hins vegar hressilega undir fótinn Sjálfstæðismenn muni stuðla því fleiri beinagrindur stjórnarliða verði opinberaðar. Skjáskot af athugasemd Jóns sjá hér fyrir neðan:

Athygli vekur meðal þeirra sem líka við athugasemd Jóns er Stefán Einar Stefánsson þáttastjórnandi hjá Morgunblaðinu, sem er einnig virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðisflokksins.

Það var Samstöðin sem greindi fyrst frá athugasemd Jóns.

Nafnalisti

  • Áslaug Árna
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Jón Gunnarssonþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Össur Skarphéðinssonþingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra
  • Stefán Einar Stefánssonfyrrverandi fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 419 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 95,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.