Slys og lögreglumál

„Yfir­þyrmandi ban­vænt afl“ Banda­ríkjanna varð fleiri leið­togum Húta að bana

Rafn Ágúst Ragnarsson

2025-03-16 15:11

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Umfangsmiklar loftárásir Bandaríkjanna á skotmörk í Jemen í gærkvöld urðu nokkrum leiðtogum Húta bana sögn þjóðaröryggisráðgjafa. Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því beita Húta yfirþyrmandi banvænu afli þar til þeir létu af árásum sínum á skip á Rauðahafi.

Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði í viðtali við bandaríska miðilinn ABC árásirnar hefðu verið hnitmiðaðar en áhrifamiklar.

Þetta var ekki einhver nálastunga, fram og til baka neitt, sem reyndist algjörlega ófullnægjandi, sagði Mike Waltz og gagnrýndi í leiðinni viðbrögð Joe Bidens forvera Trumps við aukinni dirfsku Hútanna í Rauðahafi.

Þetta var yfirþyrmandi svar sem hafði fleiri leiðtoga Hútanna skotmarki og varð þeim bana (e. took them out). Munurinn hér er, fyrir það fyrsta ráðast leiðtogum Húta og annað draga Írani til ábyrgðar, sagði hann svo.

Fram hefur komið bandarískir embættismenn segi árásirnar gætu haldið áfram í nokkrar vikur en það hengi allt á viðbrögðum Húta. Vopnageymslur Húta séu djúpt grafin í jörðu og erfiðlega hefur gengið finna þær. Þær eru taldnar framleiddar í niðurgröfnum verksmiðjum og þeim er einnig smyglað til landsins frá Íran, dyggum stuðningsaðilum sveitanna.

31 hið minnsta liggur í valnum eftir loftárásir næturinnar og segja Hútar þar mestu um ræða konur og börn. Leiðtogar Húta heita því svara fyrir árásirnar. Hútar fara með völd í Sanaa, höfuðborgar Jemen, og stórum hlutum landsins norðan- og vestanverðs. Þeir hafa háð blóðuga styrjöld við viðurkennd stjórnvöld í Íran um árabil.

Nafnalisti

  • ABCsjónvarpsstöð
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Joe Bidensdemókrati
  • Mike Waltzrepúblikani
  • Sanaahöfuðborg

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 267 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.