Móðir fékk áfall þegar hún sá son sinn á myndinni – „Þetta er hann! Þetta er hann!“

Pressan

2025-03-20 18:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Móðir ungs manns sem hélt til Bandaríkjanna í leit betra lífi fékk áfall þegar hún syni sínum bregða fyrir í myndefni frá hinu alræmda CESCO-fangelsi í El Salvador.

Myrelis Casique López steig fram í viðtali við BBC í gærkvöldi en sonur hennar virðist hafa verið í hópi eitt hundrað fanga sem fluttir voru frá Bandaríkjunum til El Salvador.

Greint var frá því í febrúar Marco Rubio hefði samið við yfirvöld í landinu um þau tækju við hættulegum glæpamönnum frá Bandaríkjunum.

Sjá einnig: Það vill enginn dvelja í þessu fangelsi

Myrelis, sem er búsett í Venesúela og þarlendur ríkisborgari, líkt og sonur hennar, segir í viðtalinu við BBC hún hafi vitað til stæði vísa syni hennar úr landi.

Segir hún sonurinn, hinn 24 ára gamli Francisco Jose Garcia Casique, hafi haft samband við hana og sagt hann væri á leiðinni heim daginn eftir þar sem hann hafði dvalið ólöglega í Bandaríkjunum. Stóðu þau bæðií þeirri trú hann yrði fluttur til Caracas. Annað kom þó á daginn og skilaði Francisco sér ekki heim á tilsettum tíma.

Það var svo á dögunum Myrelis sat fyrir framan sjónvarpið og horfði á frétt um CESCO-fangelsið hún syni sínum bregða fyrir á myndefninu. Var hann þar snoðaður og umkringdur meðlimum glæpaklíkunnar Tren de Aragua.

Bandarísk yfirvöld hafa skilgreint klíkuna sem hryðjuverkasamtök og hefur fjölda meintra meðlima hennar verið vísað frá landi síðustu vikurnar.

Þetta er hann! Þetta er hann! , segist Myrelis hafa sagt þegar hún fréttina og var sonur hennar og bróðir Francisco því sammála. Telja þau engan vafa leika á því hann hafi verið á myndefninu. Eðlishvöt móður bregst aldrei. Ég þekkti hann. Hann er með eins húðflúr á handleggnum og ég þetta var hann, segir hún.

Myrels heldur því fram fullum fetum sonur hennar ekki í neinni glæpaklíku. Hann er hárgreiðslumaður, segir hún og telur bandarísk yfirvöld hafi litið á húðflúrin sem hann er með og talið vegna þeirra væri hann meðlimur glæpaklíku.

Francisco yfirgaf Venesúela árið 2019 í leit betra lífi og settist í Perú þar sem hann bjó í nokkur ár og starfaði sem hárgreiðslumaður. Í september 2023 hélt hann til Bandaríkjanna en var ekki með dvalarleyfi og því ólöglegur í landinu. Lögregla handtók hann þann 6. febrúar síðastliðinn og var honum komið fyrir í varðhaldi uns hann var sendur úr landi.

Móðir hans hefur eðli málsins samkvæmt miklar áhyggjur af honum.

Hann er núna í einhverju svartholi þar sem enginn virðist geta bjargað honum, segir hún.

Nafnalisti

  • Caracashöfuðborg Venesúela
  • El SalvadorMið-Ameríkuríkinu
  • Francisco Jose Garcia Casique
  • Marco Rubioöldungadeildarþingmaður
  • Myrelis Casique López
  • Tren de Aragua

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 450 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 88,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.