Barna­málaráðherra eignaðist barn með tánings­pilti þegar hún var 23 ára

Eiður Þór Árnason

2025-03-20 18:09

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra átti í ástarsambandi við fimmtán ára pilt þegar hún var sjálf 22 ára og eignaðist með honum son einu ári síðar. Faðirinn sakar hana um tálmun en segist samt hafa verið rukkaður um meðlag. Barnið fæddist fyrir rúmum þremur áratugum.

Greint var frá þessu í Speglinum á RÚV. Ásthildur leiddi unglingastarf í trúarsöfnuðinum Trú og líf við Smiðjuveg í Kópavogi þegar hún kynntist piltinum sem var þá fimmtán ára. heitir Eiríkur Ásmundsson.

Farið leynt með sambandið

sögn RÚV leiðbeindi Ásthildur Lóa drengnum sem hafi komið af brotnu heimili og þess vegna leitað í trúarsöfnuðinn. Jafnframt kemur fram í frétt RÚV forsætisráðuneytið hafi verið upplýst um málið fyrir viku síðan og tjáð erindið væri trúnaðarmál. Þrátt fyrir það hafi barnamálaráðherra fengið veður af því og sett sig í samband við sendandann.

Eiríkur staðfestir í samtali við RÚV þau hafi átt í ástarsambandi fljótlega eftir hann leitaði í trúarsöfnuðinn. Leynd hafi alla tíð hvílt yfir sambandinu.

Fréttin hefur verið uppfærð. Ekki náðist í Ásthildi Lóu, Eirík eða Ingu Sæland, formann Flokks fólksins við vinnslu fréttarinnar.

Ef vaktin birtist ekki er ráð endurhlaða síðunni.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Eiríkur Ásmundsson
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 201 eind í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.