ViðskiptiStjórnmál

Á­fram talinn van­hæfur til að taka sæti í ráðinu

Atli Ísleifsson

2025-03-31 08:39

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Skrifstofustjóri borgarstjórnar Reykjavíkur telur ekki ástæðu til uppfæra eldra minnisblað varðandi hæfi Björns Gíslasonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, til taka sæti í menningar- og íþróttaráði Reykavíkurborgar. Hann telst enn vanhæfur til taka sæti í ráðinu vegna stöðu sinnar innan íþróttafélagsins Fylkis.

Þetta kemur fram í minnisblaði skrifstofustjóra borgarstjórnar til forsætisnefndar borgarstjórnar sem dagsett er 26. mars síðastliðinn.

Vísir fjallaði um málið í þarsíðustu viku eftir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir því tekin yrði á dagskrá kosning í menningar- og íþróttaráð þar sem lagt var til Björn Gíslason taki sæti í menningar- og íþróttaráði í stað Kjartans Magnússonar. Kosningunni var þó frestað.

Björn sagði í samtali við fréttastofu hann hefði mikið verið í íþrótta- og tómstundaráði í mjög langan tíma, en hann er formaður Fylkis. Hann sagðist telja mikilvægt láta á það reyna hvort álitið um vanhæfi stæðist skoðun.

Ég hef enga framfærslu eða tekjur af því vera formaður í þessu félagi. Ég skil ekki hvernig ég get verið vanhæfur. Ég held þetta væri frekar bara kostur, vera með einhvern sem er í þessu. Þetta er svipað og ef kennari væri í skóla- og frístundaráði. Það er bara kostur þekkja starfið, sagði Björn.

Í minnisblaðinu var niðurstaðan rökstudd á þeim grundvelli ráðinu bæri hafa eftirlit með rekstri mannvirkja á sviði íþrótta sem væru á vegum borgarinnar, en Fylkir annast rekstur eða hefur afnot af ýmsum eignum sem borgin annað hvort á eða framleigir til félagsins.

Vanhæfið væri þó líka vegna þess sem formaður Fylkis væri Björn gæta hagsmuna þess félags og því ekki einungis vanhæfur til fjalla um mál félagsins heldur einnig mál sem varða önnur íþróttafélög sem væru í samkeppni við Fylki.

Ekki talin þörf á uppfæra minnisblaðið

Í minnisblaði skrifstofustjóra og borgarlögmanns frá mars 2023 kom fram Björn teldist vanhæfur til sæti í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði sem þá hét. Minnisblaðið var afhent borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins og varð ekki af boðuðum mannabreytingum í ráðinu á þeim tíma.

Eftir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir því 18. mars síðastliðinn tekin yrði á dagskrá kosning í menningar- og íþróttaráð þar sem lagt var til Björn tæki sæti í menningar- og íþróttaráði réðst skrifstofa borgarstjórnar og embætti borgarlögmanns í yfirfara efni minnisblaðsins frá 2023.

Örlítið breytt orðalag breytir ekki forsendum

Í bréfinu til forsætisnefndar kemur fram ekki talin þörf á uppfærslu minnisblaðsins þar sem efni uppfærðra samninga og nýrrar samþykktar fyrir ráðið áþekkt því sem var er minnisblaðið var ritað.

Örlítið breytt orðalag nýrrar samþykktar breytir því ekki forsendum og niðurstöðu minnisblaðsins. Það helgast af því ákvæði gildandi samþykktar fyrir ráðið kveða enn á um eftirlitsskyldu ráðsins með mannvirkjum á sviði íþrótta sem eru í eigu Reykjavíkurborgar eða Reykjavíkurborg hefur veitt styrk til. Fyrir liggur það á enn við í dag um Íþróttafélagið Fylki með sama hætti og fjallað er um á bls. 4 í minnisblaðinu. Þá liggur einnig fyrir hlutaðeigandi borgarfulltrúi er enn í fyrirsvari fyrir Íþróttafélagið Fylki sem formaður félagsins og telst hann því enn í dag að auki vera vanhæfur til fjalla um mál annarra íþróttafélaga sem stunda sömu atvinnustarfsemi og Íþróttafélagið Fylki, segir í bréfinu.

Nafnalisti

  • Björn Gíslasonborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
  • FylkirLionsklúbbur
  • Kjartan Magnússonfyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 543 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 95,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.