Veiði

Útflutningsverðmæti fiskeldis 54 milljarðar árið 2024

Hagstofa Íslands

2025-03-31 09:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Heildarframleiðsla fiskeldisafurða var tæp 54,8 þúsund tonn á árinu 2024 sem er 10% aukning frá árinu 2023. Langmest var framleitt af laxi eða tæplega 49,3 þúsund tonn. Magn bleikju var 4,8 þúsund tonn og dróst saman um 9% en aðrar tegundir voru undir 1000 tonn.

Útflutningsverðmæti allra fiskeldistegunda jókst um 17% á milli ára og var 53,8 milljarðar króna árið 2024, þar af voru laxaafurðir um 47,7 milljarðar.

Gögn um fiskeldisframleiðslu í Evrópu til ársloka 2023 og sýna Noregur var langstærsti framleiðandi á laxi með rúm 1,5 milljón tonna, tíu sinnum meira en næsta þjóð, Skotland (Bretland). Færeyjar og Ísland komu þar á eftir. Ísland framleiðir mest af bleikju, 5.248 tonn. Eldi regnbogasilungs er orðið lítið á Íslandi en Ítalía, Frakkland, Spánn, Danmörk og Finnland hafa verið með stöðuga framleiðslu á regnbogasilungi síðustu ár.

Nánari upplýsingar]] Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260, netfang eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 167 eindir í 10 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 90,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,83.