Lyklaði bíl frá Teslu og er krafinn um yfir 100 milljónir í bætur

Pressan

2025-03-31 08:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Maður sem framdi skemmdarverk á Teslu-bifreið á bílastæði við Fort Worth-alþjóðaflugvöllinn í Dallas í Bandaríkjunum gæti verið í slæmum málum.

Bílar frá Teslu eru búnir öflugu myndavélakerfi og náðist andlit mannsins á mynd þegar hann gekk fram hjá bílnum, Teslu X, og dró bíllykil eftir hliðinni á honum. Talsverðar skemmdir urðu á lakkinu og leið ekki á löngu þar til andlit mannsins var orðið þekkt á netinu eftir eigandinn birti mynd af honum.

Sonur Bandaríkjaforseta, Donald Trump Jr., deildi til dæmis myndinni á X og vakti færslan talsverða athygli.

Skemmdarvargurinn var handtekinn skömmu síðar og kom í ljós hann heitir Rafael Hernandez og er 56 ára. Var hann ákærður fyrir skemmdarverk.

hefur lögmaður eigandans lagt fram kröfu um bætur á hendur Rafael og vill hann maðurinn verði dæmdur til borga eina milljón dollara í bætur. Vill lögmaðurinn meina með þessu verið senda skilaboð um skemmdarverk af þessu tagi verði ekki liðin. Bendir hann á bíllinn hafi orðið fyrir tjóni og ekki síður tilfinningalíf eigandans.

Fólk á rétt á því kaupa hvaða bíl sem það viill kaupa, alveg sama hver á fyrirtækið, og fólk ætti geta gert það án þess verða fyrir aðkasti eða skemmdarverkum, segir lögmaðurinn, Mejed Nachawati.

Borið hefur á skemmdarverkum á Teslu-bifreiðum í eigu óbreyttra borgara að undanförnu. Eru rökin þau Elon Musk er einna stærsti hluthafi fyrirtækisins.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Elon Muskforstjóri
  • Fortkanadískur bær
  • Mejed Nachawati
  • Rafael Hernandez

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 248 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,74.