„Al­var­legt við­skipta­stríð“ hafið

Samúel Karl Ólason

2025-03-12 11:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, setti í gær 25 prósenta toll á innflutning á stáli og áli. Evrópusambandið hefur tilkynnt eigin tolla á vörur frá Bandaríkjunum og er útlit fyrir viðskiptastríð hafið.

Tollar Evrópusambandsins munu taka gildi í næsta mánuði en þeir eru á ýmsar vörur frá Bandaríkjunum eins og viskí, heimilistæki, báta og mótorhjól, svo eitthvað nefnt. Tollarnir beinast vörum sem fluttar eru inn til ESB fyrir um 28 milljarða dala, sem er það sama og álið og stálið sem flutt er frá ESB til Bandaríkjanna.

Sjá einnig: Tollar Trump á stál og ál taka gildi

Tollunum er ætlað þrýsta á Bandaríkjamenn, án þess valda íbúum Evrópu of miklum skaða. AP fréttaveitan segir þá beinast sérstaklega gegn rauðum ríkjum Bandaríkjanna, en það er gert til þrýsta frekar á Repúblikana, sem eru við stjórnvölinn í Bandaríkjunum.

Frekari aðgerðir eiga taka gildi seinna í næsta mánuði, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

Trump hefur ítrekað lýst því yfir hann ætli beita tollum en það hefur ekki alltaf verið gert.

Í dag eru nokkrir tollar í gildi í Bandaríkjunum. Þann 4. febrúar hækkaði Trump tolla á innflutning frá Kína um tíu prósent. Þann 4. mars setti hann svo 25 prósenta tolla á flestan innflutning frá Mexíkó og Kanada. Tveimur dögum síðar setti hann vörur sem tengjast fríverslunarsamning milli ríkjanna á undanþágu.

Þá tóku áðurnefndir tollar á ál og stál gildi í dag.

Auk þess hefur Trump sagst ætla setja ótilgreinda tolla á innflutning landbúnaðarafurða og bíla í næsta mánuði.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagðist harma stöðuna í ávarpi í morgun. Hún sagði tolla vera skatta og þeir komi bæði niður á fyrirtækjum og neytendum.

Störf væru í húfi og verðlag myndi hækka bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum.

We deeply regret the US tariffs imposed on Europe.

Tariffs are taxes.

They are bad for business, and even worse for consumers.

Today Europe takes strong but proportionate countermeasures.

We remain ready to engage in dialogue pic.twitter.com/5 m 1 bGZjnsx]]-Ursula von der Leyen (@vonderleyen) March 12, 2025

Trump ætlaði setja fimmtíu prósent toll á ál og stál frá Kanada, vegna gjalds sem Kanadamenn ætluðu setja á rafmagn frá Kanada sem íbúar þriggja ríkja Bandaríkjanna nota en hætti við eftir viðræður ríkjanna á milli.

Sjá einnig: Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir alvarlegt viðskiptastríð vera hafið. Noregur, eins og Ísland, er í EES og lendir því á milli Bandaríkjanna og ESB.

Fjölmiðlar í Noregi hafa eftir Støre hann eigi í viðræðum við ráðamenn í ESB til koma í veg fyrir Noregur verði fyrir barðinu á aðgerðum sambandsins.

Óttast Trump hafi ekki áætlun

Óreiða undanfarinna daga hafa leitt til lækkanna á mörkuðum vestanhafs. Trump-liðar hafa sagt það nauðsynlega hliðarafurð aðgerða ríkisstjórnarinnar en Trump sjálfur neitaði nýverið útiloka samdrátt í Bandaríkjunum.

Talsmenn og ráðherrar Trumps hafa sagt lækkanirnar vera Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, kenna.

Forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja sóttu Trump heim í Hvíta húsið á mánudaginn þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum vegna tollanna og sögðu þeir gætu komið verulega niður á fyrirtækjunum og hagkerfi Bandaríkjanna.

Eftir fundinn sagði Trump fundurinn hefði verið um fjárfestingar í Bandaríkjunum.

Mismunandi yfirlýsingar Trumps og ráðgjafa hans, breytingar forsetans á síðustu stundu og skyndilegar tilkynningar um efnahagsaðgerðir hafa samkvæmt Wall Street Journal valdið miklum áhyggjum meðal forsvarsmanna fyrirtækja og ýmsa Repúblikana um Trump hafi í raun enga fastmótaða áætlun.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Europebakvið luktar dyr, og vegna þess að kortafyrirtækið á nú von á hátt
  • Hvíta húsiðauglýsingastofa
  • Joe Bidenfyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
  • Jonas Gahr Støreforsætisráðherra Noregs
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • Today Europe
  • Ursula von der Leyenforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
  • Wall Street Journalbandarískt dagblað
  • Weplata

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 622 eindir í 35 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 25 málsgreinar eða 71,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.