Veður

Hitinn gæti náð 20 stigum

Ritstjórn mbl.is

2025-04-04 12:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hlýtt loft verður yfir landinu næstu dagana. Hiti gæti náð allt 20 stigum, segir veðurfræðingur.

Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í dag verði bjart og fallegt veður víðs vegar um landið þar sem hitinn mun skríða yfir tíu stigin á nokkrum stöðum en á morgun og á sunnudag mun súld eða rigning verða viðloðandi á suður- og vesturhelmingi landsins.

Það er hæð austur af landinu við Færeyjar sem er fikra sig í áttina Bretlandseyjum og hún mun dæla til okkar sunnanáttum með hlýju lofti langt sunnan úr höfum, segir Birgir við mbl.is.

Hann segir á morgun og á sunnudag muni hámarkshitinn á Norður- og Austurlandi fara yfir 15 stig og eins og spáin líti út núna þá gæti hitinn náð allt 20 stigum í upphafi næstu viku.

Það er ekkert útilokað hitinn nái 20 stigum fyrir norðan og austan en það þarf ýmislegt ganga upp til svo verði. Eigum við ekki segja miði möguleiki, segir Birgir. Hann segir ólíklegt hitamet í apríl verði slegin.

Veðrabrigði um miðja næstu viku

Trausti Jónsson veðurfræðingur vekur athygli á hitameti á fyrri hluta aprílmánaðar á bloggsíðu sinni, Hungurdiskum.

Þar kemur fram hæsta hitatala fyrri hluta mánaðarins 21,2 stig sem hafi mælst í Neskaupstað 3. apríl árið 2007 og þá hafi hitinn farið yfir 20 stig á Skjaldþingsstöðum 9. apríl 2011.

Birgir segir líklega verði veðrabrigði eftir miðja næstu viku en hvort hiti verði þá í meðallagi eða von á kuldakasti, verði koma í ljós.

Nafnalisti

  • Birgir Örn Höskuldssonveðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands
  • Trausti Jónssonveðurfræðingur

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 267 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,83.