Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
2025-04-02 15:58
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Fyrrverandi þingmaður í utanríkismálanefnd Alþingis furðar sig á að hvorki nefndin né Alþingi hafi fengið upplýsingar um að viðbót hafi verið gerð við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna árið 2017. Þáverandi utanríkisráðherra man ekki eftir því að viðbótin hafi verið gerð en fagnar umræðu um öryggis og varnamál.
Upplýst var í fréttaskýringarþættinum Kveik á Rúv í gær að stjórnvöld hefðu gert viðbætur við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna sem voru undirritaðar 13. og 17. október 2017. Starfsstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var við völd þegar síðari viðbótin var undirrituð.
Í viðbótinni sem fréttastofa hefur óskað eftir að fá frá utanríkisráðuneytinu en birtist á vef Rúv koma fram ný ákvæði í samninginn um „Military emergency“ eða ákvæði um neyðarástand og „Operating locations“ sem fjallar um sérstök aðgerðarsvæði Bandaríkjahers hér á landi. Sérfræðingar sem koma fram í Kveik telja þessi ákvæðin tvíræð og veiti Bandaríkjaher aukna heimild til aðgerða hér á landi án skýrs samþykkis Alþingis.
Þá kom fram í þættinum í gær að þessi viðbót hafi ekki verið rædd á Alþingi eða birt í Stjórnartíðindum.
Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var utanríkisráðherra þegar viðbótin var gerð.
Varst þú meðvitaður um að verið væri að gera þessar viðbætur?
„Ég man ekki eftir nákvæmlega þessum þætti málsins. Svo það sé sagt þá var aldrei verið að leyna neinu fyrir þing eða þjóð. Ef sérfræðingur ráðuneytisins hefði talið eðlilegt að það væri farið með þetta inn í utanríkismálanefnd eða þingið þá hefðum við að sjálfsögðu gert það. En ég man ekki eftir þessu sérstaka máli.
Hann segir hins vegar gott að verið sé að ræða öryggis- og varnamál.
„Því meira sem við ræðum þessi mál því betra“
Hefði ekki verið eðlilegta--gert það
„Ef að sérfræðingarnir sem kláruðu þessa útfærslu hefði talið það eðlilegt hefðum við að sjálfsögðu gert það.“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir var þingmaður Vinstri grænna í minnihluta í utanríkismálanefnd Alþingis á þessum tíma. Hún furðar sig á að málið hafi ekki komið á borð nefndarinnar.
„Það sem mér finnst vera aðkallandi að skýra betur er hvers vegna vegna farið var í undirritun á uppfærslu á varnarsamningnum á þessum tíma þegar starfsstjórn var við völd. Samkvæmt túlkun þjóðréttarfræðinga sem Kveikur talaði við í gær eru alla vega þarna atriði sem hefði þurft að bera undir Alþingi.“
Þú sast í utanríkismálanefnd Alþingis á þessum tíma. Kom þetta mál aldrei ekki inn á ykkar borð?
„Nei þetta kom ekki inn á okkar borð.“
Hún telur afar mikilvægt málið verði upplýst.
„Auðvitað þyrfti að skýra það hvers vegna embættismaður í utanríkisráðuneytinu var látinn skrifa undir þessa uppfærslu. Þá þarf líka að koma fram hvort þetta hafi verið rætt á vettvangi ríkisstjórnarinnar þáverandi sem var starfsstjórn.
Mín reynsla er sú að embættismenn skrifa ekki undir svona samninga og breytingar á þeim nema með leyfi ráðherra.“
Nafnalisti
- Guðlaugur Þór Þórðarssonumhverfis, orkuu- og loftslagsráðherra
- Operatingplata
- Rósa Björk Brynjólfsdóttirfyrrverandi þingmaður Vinstri grænna
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 477 eindir í 28 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 85,7%.
- Margræðnistuðull var 1,62.