Stjórnmál

Mótmæla frumvarpi um rekstur líkhúsa – Sé ekkert annað en skattlagning á dánarbú

Kristinn H. Guðnason

2025-04-02 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sorgarmistöð mótmælir framkomnu frumvarpi um rekstur líkhúsa. Segja samtökin um ræða skattlagningu á dánarbú.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu sem laut rekstri líkhúsa. En um árabil hafa líkhús verið rekin með litlum efnum og mikil óvissa um lagalega stöðu þeirra.

Samkvæmt frumvarpinu verður kirkjugarði sem starfrækir líkhús heimilt innheimta gjald vegna geymslu líka. Þetta gjald verði grundvöllurinn rekstri líkhússins og dekki kostnað vegna launa, húsnæðis, rafmagns, viðhalds, ræstinga, tækja og fleira.

Þetta er Sorgarmiðstöðin, sem beitir sér fyrir hagsmunum syrgjenda, ekki ánægð með eins og kemur fram í umsögn framkvæmdastjórans, Kristín Lilja Sigurðardóttir. Leggur miðstöðin til frumvarpið verði hreinlega dregið til baka.

Sjá einnig:

Líkhúsið á Akureyri til söluGlæsilegt hús á besta stað í bænum

Við lestur greinargerðarinnar sem fylgir frumvarpinu verður ekki annað séð en kirkjugarðar sem reka líkhús fái lagalega heimild til reikna inn í væntanlegt líkhúsgjald allan kostnað sem hlýst af rekstri líkhússins og því muni gjaldinu í raun ætlað standa alfarið undir rekstri viðkomandi líkhúss, segir í umsögninni. Hér er því opnað fyrir möguleika á víðtækari gjaldtöku en sem nemur þjónustu við geymslu líka. Verður ekki annað ráðið af orðalaginu en í raun um skattlagningu á dánarbúum ræða til reksturs líkhúsa, en ekki þjónustugjald fyrir geyma lík um tiltekinn tíma.

Er skorað á Allsherjar- og menntamálanefnd falla frá frumvarpinu en tryggja þess í stað tímabundið framlag úr ríkissjóði til þeirra kirkjugarða sem reka fullbúin líkhús. Jafn framt verði flýtt heildarendurskoðun á lögunum og samkomulag ríkis og kirkjugarðaráðs frá árinu 2005 endurskoðað. En það fjallaði um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða meðal annars til líkgeymslu og reksturs líkhúsa.

Nafnalisti

  • Kristín Lilja Sigurðardóttirfyrirsæta
  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttirþingmaður Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 314 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 81,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,48.