Stjórnmál

Fram­tíð óperunnar á Ís­landi

Ása Berglind Hjálmarsdóttir

2025-03-19 08:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Menning er undirstaða hvers samfélags og hefur djúpstæð áhrif á sjálfsmynd, tengsl og samheldni fólks. Menningin er spegill á þjóðarsál nútímans, fortíðar og í einhverjum tilfellum gluggi inn í framtíðina. Hún gefur landsmönnum tækifæri til þess eiga sameiginleg augnablik og eru dæmin um það fjölmörg. Menningin er það sem gerir okkur þjóð, ekki stétt eða staða, húðlitur eða trú.

Það er því sérstakt gleðiefni frumvarpið sem Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, lagði fram í gær og tryggir framtíð óperulistar á Íslandi skuli hafa hlotið jákvæða umræðu og greinileg samstaða til staðar um málið. Frumvarpið byggir á góðri vinnu sem átti sér stað hjá fyrri ríkisstjórn undir forystu Lilju Alfreðsdóttur en er lagt fram með breytingum sem ríma við áherslur núverandi ríkisstjórnar.

Staðan sem hefur verið uppi síðustu ár hefur verið óviðunandi fyrir þjóð sem byggir sinn menningararf á sagnalist og söng. Hún hefur verið óviðunandi fyrir þá fjölmörgu söngvara sem hafa lagt á sig mikla menntun og sérhæfingu til þess verða sérfræðingar á sínu sviði og hafa mörg hver þurft leita til annarra landa til þess tækifæri til starfa við sitt sérsvið. óvissa sem hefur verið síðustu ár um framtíð óperustarfsemi á Íslandi hefur verið óviðunandi fyrir menningarþjóðina Ísland. En stendur til bæta úr þessari stöðu með frumvarpi til breytingar á sviðslistalögum sem miða því óperan fái varanlegan sessi innan stjórnsýslu og stuðningskerfis Þjóðleikhússins á sama tíma og heimili hennar verður í Hörpu.

Með lagabreytingunni verður óperunni skapaður sess sem kjarnastofnun fyrir óperulist á sama hátt og Þjóðleikhúsið er fyrir leiklist og Íslenski dansflokkurinn fyrir danslist. Samfelld starfsemi verður allt árið um kring sem leggur áherslu á klassískan menningararf óperulista og gera hann aðgengilegan almenning. Að auki verður rík áhersla á óperan verði vettvangur fyrir nýsköpun, sem gerir tilraunir með listformið og verði í virku samstarfi við landsbyggðina, sjálfstæða hópa og menntastofnanir eins og Listaháskólann. Áherslan er á listafólkið og samstarf þess við ólíka aðila, ekki bara á eldri skilgreiningar á listforminu og þörfum þess.

Í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er áhersla á auka aðgengi landsmanna menningarlífi óháð efnahag og búsetu og ber frumvarpið þess merki, en með lögbundnu hlutverki öðlast óperan bolmagn til fylgja eftir stefnu um jafnrétti, inngildingu og aðgengi. Í frumvarpinu er lögð áhersla á óperan sinni samfélagslegri ábyrgð á sviði fræðslumála sem sameinandi afl menntunar og menningar þar sem lagt er upp með nýta hugmyndir og sköpunarkraft ungs fólks til þróa listformið áfram. Þá er lagt upp með íslenska Óperan leiti eftir samstarfi í öllum landshlutum sem mun styrkja tengsl við einsöngvara, kóra, hljómsveitir og sviðslistafólk utan höfuðborgarsvæðisins. Allt eru þetta virkilega jákvæð framfaraskref fyrir menningarlífið í landinu.

Ísland stendur framarlega þegar kemur menningu, skapandi greinum og aðbúnaði þeirra. Þetta skilar okkur framúrskarandi fólki sem starfar í menningu, bæði fremst á sviði hér á landi og víða um heim en ekki síður í skapandi störfum á bakvið tjöldin. Tónlistarhúsið Harpa er á heimsmælikvarða og er þjóðarstolt okkar Íslendinga. Því er það gleðiefni Óperan komi til með eiga þar samastað þrátt fyrir tilheyra Þjóðleikhúsinu og njóta stoðdeilda sem þar eru. Samlegðaráhrifin eru mikil í fyrirkomulaginu sem hér er lagt upp með og á sama tíma verður Óperan með fullt listrænt sjálfstæði og er hvött til samstarfs við ólíka hópa.

Menning og skapandi greinar eru orðin ein af undirstöðum í íslensku atvinnulífi eins og kom glögglega fram í skýrslu Ágústs Ólafs Ágústssonar um hagræn áhrif menningu og skapandi greina. Það er því fagnaðarefni með frumvarpinu verið tryggja störf fyrir fleira fólk í menningarlífi landsins, en stefnt er því Óperan ráði yfir allt 12 stöðugildum fyrir einsöngvara og 16 stöðugildum fyrir kór á komandi árum, auk fasts starfsfólks. Stór óperusýning getur veitt yfir 100 sérmenntuðu starfsfólki vinnu og margfeldisáhrifin eru mikil. Óperustarfsemi veitir einnig viðbótarstörf fyrir fjölda manns í sviðslistageiranum sem þurfa á fleiri og fjölbreyttari verkefnum halda. Slík þjálfun kemur gagni með margvíslegum hætti, nýtist í uppeldi þjóðarinnar og í tekjumyndandi starfsemi eins og kvikmyndagerð og öðrum störfum innan og utan skapandi greina.

Síðast en ekki síst er það mikið fagnaðarefni framúrskarandi íslenskir söngvarar, sem margir hverjir búa og starfa erlendis, fái fleiri tækifæri til þess vinna hér heima og við sem hér búum fáum þá jafnframt fleiri tækifæri til njóta hæfileika þeirra.

Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar.

Nafnalisti

  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Lilja Alfreðsdóttirþáverandi mennta- og menningarmálaráðherra
  • Logi Einarssonfráfarandi formaður Samfylkingarinnar
  • Ólafur Ágústssonþingmaður Samfylkingarinnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 770 eindir í 30 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.