Menning og listir

Verðlaun fyrir ræfilsskap

Sif Sigmarsdóttir

2025-03-08 08:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Síðastliðinn sunnudag hefði Soheila Golestani átt vera klæða sig upp fyrir Óskarsverðlaunaathöfnina. Golestani er aðalleikkona írönsku kvikmyndarinnar Afleggjari hins heilaga fíkjutrés, sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. En þess í stað sat hún á náttfötunum í stofufangelsi í Teheran.

Golestani bíður þess koma fyrir dómstól Íranska byltingarvarðarins en hún er sökuð um áróður gegn klerkastjórninni með leik sínum í myndinni. Á Golestani yfir höfði sér fangelsisvist og 74 svipuhögg.

Afleggjari hins heilaga fíkjutrés er hörð ádeila á kúgun íranskra stjórnvalda á þegnum sínum. Myndin var tekin upp í leyfisleysi og hefur hún ekki fallið í kramið hjá yfirvöldum. Leikstjóra myndarinnar og helstu leikurum hennar tókst flýja Íran í maí síðastliðnum en Golestani var þá stödd í bráðaaðgerð á spítala og komst ekki með.

Golestani mætir örlögum sínum þó af undraverðu æðruleysi. Í viðtali við dagblaðið The Times skömmu fyrir Óskarinn viðurkenndi hún það hefði óneitanlega verið skemmtilegt geta verið viðstödd verðlaunahátíðina. Hún vildi þó heldur halda kyrru fyrir og standa á rétti sínum til gera það sem hún gerði.

Væru verðlaunin veitt fyrir ræfilsskap hlyti athöfnin sjálf heiðurinn

Væri Óskarinn veittur fyrir hugrekki teldist Afleggjari hins heilaga fíkjutrés óumdeildur sigurvegari. Væru verðlaunin veitt fyrir ræfilsskap hlyti athöfnin sjálf heiðurinn. Því þótt víða glitti í bert hold í gegnum gagnsæja skrautkjóla sást hvergi móta fyrir dirfsku.

Uppgjöf gagnvart óttanum

Við veitingu Óskarsverðlaunanna árið 2017, við upphaf fyrra kjörtímabils Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna, Hollywood ekki á skoðun sinni á leiðtoganum. Kvöldlangt gerði kynnir hátíðarinnar stólpagrín hinum nýja forseta og ræður verðlaunahafa innihéldu tilfinningaþrungnar yfirlýsingar um mikilvægi þess standa vörð um frjálslyndi.

Átta árum síðar var komið annað hljóð í strokkinn. Við upphaf síðara kjörtímabils Trumps fóru bljúgir listamenn með innantómt orðagjálfur um mikilvægi þess fara í bíó þegar manni finnst heimurinn klofinn og var forsetinn hvergi nefndur á nafn.

Vísbendingar um uppgjöf Hollywood gagnvart Trump blöstu við löngu fyrir endurkjör hans í embætti forseta.

Það er eins og fólk búið gefast upp fyrir óttanum

Kvikmyndin Lærlingurinn (e. The Apprentice) var frumsýnd á síðasta ári en hún fjallar um samband Trumps við Roy Cohn, umdeildan lögmann sem var lærimeistari forsetans við upphaf viðskiptaferils hans. Myndin féll ekki í kramið hjá Trump og í kjölfarið fékkst ekki eitt einasta fyrirtæki í Hollywood til annast dreifingu hennar. Hringdu í mig ef Trump tapar kosningunum, sagði frægur kvikmyndaframleiðandi við handritshöfund myndarinnar.

Þótt myndin hafi hlotið Óskarstilnefningar fyrir besta aðalleikara og besta leikara í aukahlutverki fékk hún litla athygli í aðdraganda hátíðarinnar. Um þessar mundir virðist eiga sér stað almennur hvítþvottur og gelding á menningu, sagði Jeremy Strong, sem fer með hlutverk í myndinni og margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Succession. Strong segir hræðslu við rugga bátnum skaðlega listum sem eigi vera spegill á umhverfi okkar. En það er eins og fólk búið gefast upp fyrir óttanum.

gangast undir vald

Í myndinni Afleggjari hins heilaga fíkjutrés fer Soheila Golestani með hlutverk eiginkonu embættismanns við dómstól Íranska byltingarvarðarins. Þegar eiginmanni hennar býðst stöðuhækkun, sem krefst þess hann skrifi upp á dauðarefsingar í málum þar sem litlum sönnunargögnum er fyrir fara, togast á með henni löngun í ávinninginn sem henni fylgirstærri íbúð, virðing og kannski uppþvottavélog samviska hennar.

Leikstjórinn Mohammad Rasoulof sagðist í viðtali hafa fengið hugmyndina myndinni þegar hann sat í fangelsi fyrir kvikmyndagerð sína og ræddi við einn fangavarðanna sem gættu hans. Með myndinni vildi hann sýna hversu tilbúið fólk er til gleyma mannkostum sínum og gangast undir vald.

Í aðdraganda Óskarsverðlaunanna líkti leikstjóri kvikmyndarinnar Lærlingsins, myndarinnar um Donald Trump, ritskoðun í Bandaríkjunum við ritskoðun í Rússlandi, Kína og Íran. Hér ertu ekki tekinn af lífi eða settur í fangelsi. Þú ert einfaldlega grafinn.

Ef marka nýafstaðna Óskarsverðlaunahátíð virðist Hollywood búin gleyma mannkostum sínum og gengst skeytingarlaus undir vald Donalds Trump.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Hollywoodskemmtistaður
  • Jeremy StrongSuccessionleikari
  • Mohammad Rasoulofeinn virtasti leikstjóri Írans
  • Roy Cohnlögfræðingur
  • Soheila Golestani
  • Successionsjónvarpsþáttur
  • The Apprenticeraunveruleikaþáttur
  • The Timesbreskt dagblað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 707 eindir í 38 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 31 málsgrein eða 81,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.