25 menntamálaráðherrar sækja fund í Hörpu

Ritstjórn mbl.is

2025-03-23 11:59

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Leiðtogafundur ISTP hefst á morgun í Hörpu. Fundurinn er einn stærsti vettvangur samtals menntamálayfirvalda og stéttarfélaga kennara í löndum OECD.

Á fundinn koma 25 menntamálaráðherrar og kennaraforysta þátttökuríkja saman ásamt sendinefndum OECD og Alþjóðlegu kennarasamtakanna til ræða málefni kennara og menntaumbætur. Alls er gert ráð fyrir um 200 þátttakendum frá 24 ríkjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Fundurinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2011, en er haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Um er ræða stærsta alþjóðlega fund leiðtoga á sviði menntamála sem haldinn hefur verið á Íslandi.

Nýr mennta- og barnamálaráðherra tekur við af Ásthildi Lóu Þórsdóttur í dag. Boðað hefur verið til ríkisráðsfunda á Bessastöðum í dag. Hefst fyrri klukkan 15 en síðari klukkan 15.15.

Ekki hefur fengist staðfest hver það er sem tekur við af Ásthildi Lóu, en heimildir Ríkisútvarpsins herma Guðmundir Ingi Kristinsson taki við keflinu.

Væntanlega verður fyrsta verk nýs mennta- og barnamálaráðherra sækja leiðtogafundinn á morgun.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundir Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 160 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.