Eins­leit Edda

Jódís Skúladóttir

2025-03-23 22:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þann 8. október síðastliðinn hélt ég ræðu á Alþingi undir liðnum störf þingsins og fjallaði ég þar um myndina Ljósvíkingar.

Í ræðu minni segi ég meðal annars Íslensk kvikmyndagerð er á heimsmælikvarða. Hún skilar fjölda starfa, styrkir íslenska tungu og lyftir okkar samfélagi og menningu

Myndin Ljósvíkingar hefur hlotið mikla og verðskuldaða athygli langt út fyrir landsteinana en í myndinni er fjallað um tvo málaflokka sem standa hjarta mínu nær en það eru verndun hins íslenska bátaarfs og málefni hinsegin fólks.

Ég er svo sannarlega ekki ein um hafa verið ánægð með myndina því hún hlaut gríðarlega góðar viðtökur í kvikmyndahúsum og í janúar var myndin sýnd á Palm Springs International Film Festival í Bandaríkjunum og hlaut þar standandi lófaklapp. Myndin er tilnefnd til fjölda Edduverðlauna. Alls eru tilnefningarnar níu talsins og eru þær meðal annars sem kvikmynd ársins, handrit ársins, leikari ársins í aðalhlutverki, leikkona ársins í auka hlutverki og leikstjóri ársins.

Allt sjálfsagt verðskuldað. En það slær mig sjá Örnu Magneu Danks ekki tilnefnda sem leikkonu ársins og verð spyrja mig hverju það sætir.

Arna Magnea Danks á stórleik í myndinni og hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Eftir myndin var sýnd í Barndaríkjunum var henni meðal annars líkt við leikkonuna Karla Sofía Gascón sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni Emilia Pérex. En hvað veldur því mynd, sem mínu mati hefði aldrei náð sama flugi án aðal leikonunnar, tilnefnd til flestra verðlauna á Eddunni utan tilnefningar fyrir leikkonu ársins í aðal hlutverki?

Arna Magnea sótti ekki Palm Springs hátíðina þeirri einföldu ástæðu íslenskt trans fólk treystir sér ekki til Bandaríkjanna eins og staðan er þar Vestan hafs. Aðför réttindum trans fólks er bæði hörð og hættuleg þar vestra og dæmi eru um það trans fólk hreinlega komið á flótta frá Bandaríkjunum vegna ógna Trumpstjórnarinnar í þeirra garð. Það var ánægjulegt heyra utnaríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, segja frá því á dögunum Utanríkisráðuneytið undirbúi ferðaleiðbeiningar fyrir hinsegin fólk. Það er raunverulega orðið hættulegt fyrir ákveðna hópa ferðast á Vesturlölndum!

Ísland er í fremst í röð þegar kemur réttindum hinsegin fólks en orðræðan, bakslagið, þöggunin og glerþökin færast nær og eru byrjuð hafa áhrif hér á litla Íslandi. Það fyrsta opinberlega trans leikkonan sem hefur með stórleik sínum rutt brautina og er fyrirmynd fyrir ungt hinsegin listafólk ekki tilnefnd til Eddunnar er mér óskiljanlegt.

Ég veit það eru aldrei öll tilnefnd. Ég veit oftast eru skiptar skoðanir um verðlaun og tilnefningar. En listin er okkar sterkasta tjáningarform í heimi sem stendur á tímamótum þegar kemur mannréttindum. Í flestu er pólitík, við nýtum þau tækifæri sem við höfum til þess standa með mannréttindum og koma okkar viðhorfum á framfæri.

Arna Magnea Danks hefði mínu mati verið vel Edduverðlaunum komin en þær sem eru tilnefndar eru það líka. Málið snýst því fyrst og fremst um þá ótrúlegu niðurstöðu þeirra sem því ráða Arna Magnea ekki tilnefndi til verðlauna fyrir frammistöðu sem sem hefur brotið blað í íslenskri kvikmyndasögu.

Ég hef staðið með íslenskri kvikmyndagerð árum saman, hvort heldur sem aðstandandi og vinkona kvikmyndagerðarfólks og sem neytand íslenskra kvikmynda. En ekki síst nýtti ég rödd mína á meðan ég sat á þingi og barðist fyrir fjármögnun og viðurkenningu íslenskrar kvikmyndagerðar alls staðar þar sem ég hafði tækifæri til.

Ég vona íslensk kvikmyndagerð standi með mannréttindum og noti sín tækifæri til þess efla, styðja og auðga fjölbreytta flóru. Ekki síst kvenna, hinsegin fólks og allra þeirra annara sem ekki njóta fyllstu forréttinda í íslensku samfélagi. Einhæft samfélag skapar einhæfa list, einhæf list skapar einhæft samfélag.

Höfundur er fyrrverandi þingkona og áhugamanneskja um íslenska kvikmyndagerð.

Nafnalisti

  • Arna Magnea Danksgrunnskólakennari
  • Emilia Pérex
  • Karla Sofía Gascón
  • Palm Springsþekktur sumardvalarstaður
  • Palm Springs International Film Festival
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 640 eindir í 30 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 76,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.