ViðskiptiStjórnmál

Telur ríkisstjórnina ekki skilja „verðmætasköpun“

Ritstjórn mbl.is

2025-03-25 18:11

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ég verð viðurkenna það það eru engir jákvæðir punktar þarna, segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.

Hann málar upp dökka mynd af afleiðingum breytinga á veiðigjöldum fari svo þær verði samþykktar.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynntu breytingarnar í dag en í þeim felst breyting á skráðu aflaverðmæti fyrir bæði botnfisk og uppsjávarfisk.

Breyting sem átti gerast á tíu árum

Í samtali við mbl.is segist Sigurður hafa haft áhyggjur af því ríkisstjórnin skilji ekki orðið verðmætasköpun og það hafi kristallast í dag.

Nefnir hann einnig loforð fyrir kosningar um skoða ætti tvöföldun veiðigjalda á tíu árum, en það raungerast á nokkrum vikum.

Minni fyrirtækin munu gefast upp

Þá séu afleiðingarnar fyrirséðar:

Fjárfestingum í fiskvinnslu á Íslandi er lokið, fiskvinnsla mun flytjast úr landi, óunninn fiskur mun flytjast úr landi, verðmætasköpun flyst úr landi, útflutningstekjurnar lækka, krónan gefur eftir, verðbólgan heldur áfram, atvinnuleysi eykst og landsbyggðin blæðir, segir formaðurinn og nefnir ofan á tvöföldun veiðigjalda standi einnig til hækka kolefnisgjald um nokkra milljarða á sömu atvinnugrein í þokkabót.

Segir Sigurður stærri fyrirtækin muni hugsanlega geta staðið undir breytingunum en minni fyrirtækin muni gefast upp og flytja út.

Vonar ríkisstjórnin sjái sér

Ég vænti þess þessar tillögur fari í almenna umræðu og ég vona þau sjái hreinlega sér.

Þessi mynd sem ég var teikna upp, hún er upphafið þessu og hún gerist auðvitað ekki í einni hendingu en þetta gerist á næstu árum.

Nafnalisti

  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Sigurður Ingi Jóhannssonformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 284 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,48.