Stjórnmál

Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“

Rafn Ágúst Ragnarsson

2025-03-17 22:44

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Innviðaráðherra segir leigubílamarkaðinn hafa verið eins og villta vestrið hingað til en standi til gera viðamiklar breytingar. Hann hefur lagt fram frumvarp í samráðsgátt um breytingar á starfsemi leigubílstjóra sem felur meðal annars í sér innleiða stöðvarskyldu nýju.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist gera ráð fyrir frumvarpið njóti stuðnings mikils meirihluta þingsins en auk stöðvarskyldunnar mun það innleiða rafræna skrá þar sem upplýsingar um allar ferðir verða skráðar. Upphaf, endastöð, akstursleið og greiðslur verða skráðar en Eyjólfur segir mýmörg dæmi um alvarleg afbrot vegna skorts á eftirliti.

Þetta er búið vera hálfgert villt vestur núna. Þú gast verið einn á stöð, gast verið með stöðina í öskubakkanum hjá þér og verið bara einn harka. En núna verður aukin ábyrgð á stöðvunum, segir Eyjólfur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Svindlað á prófum

Hann segir gögnin verða varðveitt í minnst sextíu daga og svo verði gerð árleg úttekt á gagnakerfunum. Þetta eigi tryggja bætta starfshætti og aukið eftirlit með atvinnugreininni. Þá verði aðrir þættir teknir út þegar líður á kjörtímabilið og nefnir Eyjólfur leyfisveitingar sérstaklega í því samhengi.

Próf sem lögð eru fram til leyfisveitinga hafa verið á íslensku hingað til en Eyjólfur segir algengt hafi verið svindlað væri á prófunum og því þurfi taka á.

Það voru einstaklingar taka próf sem voru hálfgert svindl jafnvel. Það er krafa bæði í Danmörku og Noregi þá eru prófin tekin á dönsku og norsku, skýr krafa. Við þurfum hafa það alveg skýrt í íslensku lögunum, segir hann.

Afnám gjaldmælaskyldunnar valdi ósanngjarnri verðlagningu

Eyjólfur segir skortur á eftirliti hafi stofnað farþegum í hættu og afnám gjaldmælaskyldu hafi skapað rými fyrir ósanngjarna verðlagningu og þá sérstaklega gagnvart ferðamönnum. Hann segir það sem hann varaði við þegar lög um leigubílaakstur voru samþykkt árið 2022 hafi raungerst.

Við Inga Sæland tókum þátt í umræðum um þetta í þinginu, ég man svo vel þetta var kvöldi til og bílstjórarnir voru flauta eins og enginn væri morgundagurinn langt fram á kvöld og það er akkúrat rætast allt sem við sögðum, segir hann.

Nafnalisti

  • Eyjólfur Ármannssonþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi
  • Inga Sælandformaður
  • Reykjavík síðdegis á Bylgjunniútvarpsþáttur

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 381 eind í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.