Björgunaraðgerðir á Eyjafjallajökli og Fimmvörðuhálsi
Ritstjórn mbl.is
2025-03-29 22:46
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Björgunarsveitafólk úr nokkrum björgunarsveitum af Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu komu síðdegis í dag og í kvöld fólki til bjargar sem var í vandræðum á Eyjafjallajökli og Fimmvörðuhálsi. Tóku aðgerðirnar töluverðan tíma en er nú verið að flytja fólkið að Skógum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli kallaðar út eftir að aðstoðarbeiðni barst frá hópi skíðafólks á leið yfir Eyjafjallajökul að Fimmvörðuhálsi.
Á toppi jökuls treysti einn út hópnum sér ekki til að halda áfram og hélt einn leiðsögumaður kyrru fyrir með viðkomandi, á meðan hinir úr hópnum héldu áfram.
Björgunarsveitir á æfingu til aðstoðar
Færð á jöklinum var slæm og þurftu björgunarsveitir að fara á vélsleðum og snjóbílum.
Um svipað leyti barst svo aðstoðarbeiðni frá fólki á tveimur jeppum á svipuðum slóðum sem höfðu fest bílana sína. Voru þá kallaðir út fleiri snjóbílar úr Grímsnesi og Garðabæ
Auk þess komu björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu, sem voru á æfingu í nágrenninu, til aðstoðar.
Gönguhópurinn sneri við vegna veðurs
Um sjöleytið í kvöld komu fyrstu björgunarsveitamenn á sleðum á topp Eyjafjallajökuls og var sá einstaklingur sem þar beið aðstoðar, fluttur á móti snjóbíl sem var skammt á eftir.
Gönguhópurinn, sem hafði ætlað yfir á Fimmvörðuháls, hafði þá snúið við vegna veðurs og var tekin ákvörðun um að snjóbílarnir myndu flytja allan hópinn niður.
Rétt fyrir klukkan tíu í kvöld var allur gönguhópurinn kominn í bíla á Hamragarðaheiði og verður fólkið flutt að Skógum. Þá voru jepparnir tveir voru losaðir er verið að flytja þá af jöklinum.
Nafnalisti
- Hellamálmsteypa
- LandsbjörguSlysavarnarfélag
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 265 eindir í 15 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
- Margræðnistuðull var 1,59.