Að fara á límingunni á 58 dögum

Ritstjórn mbl.is

2025-03-21 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásgeir Ingvarsson kafar ofan í fréttir af erlendum vettvangi í ViðskiptaMogganum á miðvikudögum.

Hér á Ítalíuskaganum hefur aldrei verið skortur á litríkum leiðtogum. Fyrst komu rómversku keisararnir, sem voru sitt á hvað útsmognir klækjarefir, sjálfhverfir rugludallar og göfugir landsfeður. Svo komu aðalsættir endurreisnartímabilsins og með þeim heill haugur af prinsum, hertogum og páfum sem gerðu sér það leik lifa hátt og stinga hver annan í bakið. Loks færðu 20. og 21. öldin Ítölum menn á borð við Mussolini og Berlusconi.

Það er hægt halda upp á suma þessara leiðtoga þó þeir hafi ekki verið sómamenn í alla staði. Sumir eru einmitt skemmtilegir fyrir þær sakir hvað þeir gátu verið kræfir og óforskammaðir. Ég kemst t.d. ekki hjá því halda upp á Alexander VI. páfa, en það er honum þakkaeða kenna enn þann dag í dag tengir fólk Borgia-ættina við syndsamlegt líferni og frændhygli. Sögurnar um Alexander eru svo margar, og svo krassandi, þær geta varla allar verið sannar en um það verður ekki deilt hann eignaðist fjölda barna með fjölda kvenna og líklega hefur hann líka átt það til gamna sér með laglegum ungum mönnum. Fyrir Alexander var lífið eitt allsherjar veisluborð.

Alexander VI. var þó ekki alslæmur, og honum tókst t.d. koma í veg fyrir stríð brytist út á milli Portúgals og Spánar um yfirráð yfir Vesturheimi. Hann breiddi líka út faðminn á móti þúsundum gyðinga sem Ferdinand og Ísabella hröktu frá Spáni, og var boðinn og búinn liðsinna hverjum þeim sem átti um sárt binda. Svo virti Alexander tjáningarfrelsi samlanda sinna-meira að segja þegar þeir skálduðu upp rætnar kjaftasögur um páfann sjálfan, og við eigum mörg meistaraverk Michelangelos og Rafaels Alexander VI. þakka.

Sagnfræðingurinn William Landon er ósköp sanngjarn þegar hann bendir á Alexander VI. hafi, þrátt fyrir allt, ekki verið mikið verri en hans eigin samtímamenn. Ráðabrugg, sukk og svínarí var fyrir löngu orðið lenska í Róm þegar Alexander mætti þar til leiks-hann var einfaldlega afsprengi og holdgervingur sinnar samtíðar.

Það er ágætt leyfa lesendum spreyta sig aðeins á Machiavelli á frummálinu og lesa hvernig hann komst orði þegar hann lýsti verkumog voðaverkumBorgia-ættarinnar, og benti á þrátt fyrir allt voru áhrif þeirra á ítalskt samfélag ekki alslæm og jafnvel góð:

E nelle azioni di tutti gli uomini, e massime de principi, dove non è iudizio a chi reclamare, si guarda al fine.

Í lauslegri þýðingu: Þegar við dæmum mannanna verk, og sér í lagi þegar furstar eiga í hlut, verðum við líka meta hver útkoman varð.

Þegar allir hrukku í kút

Það er ekki alltaf auðvelt halda uppi vörnum fyrir Donald Trump.

Á blaðamannafundinum fræga, þar sem allt fór í háaloft, varð Trump sér til minnkunar, en þeir Selenskí og Vance líka. Þegar fundurinn er skoðaður í heild sinni sjá Selenskí vildi reyna nota fundinn, fyrir framan myndavélarnar, til breyta því sem þegar hafði verið samið um. Selenskí potaði í Trumpá hans heimavelliog Vance potaði á móti, og loks fylltist mælirinn hjá Trump.

Eftir þessa leiðinlegu uppákomu fór vestræna stjórnmálaelítan í hnút og lét eins og þetta væri í fyrsta skiptið sem kjörnir fulltrúar hefðu nokkurn tíma rifist. Eitt hefur leitt af öðru og sjá viðtölin við hvern stjórnmálamanninn á fætur öðrum sem segir frá því, með alvörugefnum svip, vináttu- og varnarsambandið við Bandaríkin engu orðið. Geðshræringin er svo mikil meira að segja sumir íslenskir sjálfstæðismenn halda til finna öruggt skjól í hörðum heimi þurfi Ísland ganga í Evrópusambandið, þó þar allt á niðurleið og atvinnulífið drukkna í reglugerðum.

Í því sambandi er gott minna á Finnland á metið í stysta umsóknarferlinu hjá ESB, en þar liðu þrjú ár frá umsókn til aðildar. Svíar koma næstir með fjögur ár, en alla jafna hefur það tekið þjóðir um það bil áratug inngöngu. Trump verður því örugglega farinn frá völdum áður en Íslandi verður úthlutað sæti við borðið í Brussel.

En auðvitað er það af og frá Bandaríkin hyggist gefa Nató upp á bátinn eða Trump ætli klekkja á vestrænum vinaþjóðum. Ég hef sagt það áður, og segi það enn: það á taka Trump alvarlega, en það á ekki taka hann bókstaflega.

Listin skilja Trump

Kannast lesendur við það vera másandi og blásandi á hlaupabrettinu, líða eins og hlaupaprógrammið hljóti vera hálfnað en líta svo á mælaborðið og sjá það eru ekki nema nokkrar mínútur liðnar af 30 mínútna skokki? Tilfinningin er svipuð eftir Trump komst aftur til valda. Í dag eru ekki liðnir nema 58 dagar af kjörtímabilinuekki einu sinni tveir mánuðirog 96% af kjörtímabilinu eru eftir.

Til þrauka næstu 46 mánuðina er mikilvægast fólk skilji þær aðferðir sem Trump beitir. Hann hefur t.d. komist upp á lagið með slengja fram fjarstæðukenndum hugdettum, eins og innlima Grænland. Í hvert skipti virkar þetta til skapa líflega umræðu um vandamál sem annars hefðu ekki fengið neina athygli. Fyrst fer Trump langt yfir strikið, en svo dregur hann í land og yfirleitt er niðurstaðan eitthvað sem allir geta sætt sig við.

Það er heldur ekki ástæðulausu Macron virðist eiga auðvelt með tjónka við Trump, enda er stutt í skjallið hjá Frökkunum. Trump er mjög móttækilegur fyrir skjalli og vegtyllum, og hitti blaðamaðurinn Fareed Zakaria naglann á höfuðið þegar hann benti á Selenskí hefði frekar átt mæta til fundarins í Washington með risastóra medalíu handa Trump og boði um byggja sem allra fyrst heimsins stærsta Trump-turn í Úkraínu. Þá hefði Trump ekki verið neitt nema velvildin.

Trump gæti virkað óútreiknanlegur og uppátækjasamur, en hann er fyrirsjáanlegur að því leyti hann fylgir eigin eðlisávísun og er drifinn áfram af frekar augljósum hvötum. Hann spilar ekki eftir þeim reglum sem vestrænir stjórnmálamenn eru vanir, en hann kemur til dyranna eins og hann er klæddur.

Svo er ágætt muna Trump, eins og Alexander VI., er einfaldlega afsprengi sinnar samtíðar. Með hverjum áratugnum virðast stjórnmálin og samfélagsumræðan hafa færst niður á lægra plan, jafnt í Bandaríkjunum sem annars staðar, og keyrði um þverbak eftir tilkomu samfélagsmiðlanna. Trump er lækningin við ákveðnu meini (og mixtúran er súr), en eins og bandarísk stjórnmál voru orðin þurfti manngerð eins og Trump til slá vopnin úr höndum vinstrimanna, komast á toppinn og reyna beina hlutunum í ögn skárri farveg.

Kannski verður næsti forseti Bandaríkjanna djúpvitur, yfirvegaður og sjarmerandi sómamaðurhver veit? En mig grunar þegar valdatíð Trumps er lokið muni það blasa við hann kom mörgu góðu í verk og skilaði af sér betra búi en hann tók við.

Si guarda al fine.

(Greinin birtist upphaflega í ViðskiptaMogganum miðvikudaginn 19. mars)

Nafnalisti

  • Alexandertvíburi
  • Ásgeir Ingvarssonblaðamaður á Morgunblaðinu
  • Berlusconieigandi knattspyrnuliðsins AC Milan
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Fareed Zakaria
  • Ferdinandeinn þekktasti knattspyrnumaður Bretlands
  • Ísabellaunglingur
  • Machiavelliheimspekingur
  • Macronforseti Frakklands
  • Mussolinieinræðisherra Ítalíu á tímum seinni heimsstyrjaldar
  • Rafael Alexander
  • SelenskíÚkraínuforseti
  • Vancedyggur stuðningsmaður Trumps
  • ViðskiptaMogganummiðvikudagur
  • William Landon

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1230 eindir í 51 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 38 málsgreinar eða 74,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.