Íþróttir

„Búin að taka mig inn í fjöl­skylduna“

Valur Páll Eiríksson

2025-04-01 16:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Alexandra Jóhannsdóttir mætir í góðu formi til liðs við íslenska landsliðið fyrir komandi leiki við Noreg og Sviss í Þjóðadeildinni. Hún hefur byrjað vel á nýjum stað í Svíþjóð.

Alexandra gekk í raðir Kristianstad í Svíþjóð frá Fiorentina á Ítalíu fyrir nýhafna leiktíð. Hún hefur farið vel af stað í upphafi leiktíðar. Alexandra lagði upp í fyrsta leik og skoraði í þeim næsta en Kristianstad er með þrjú stig eftir þá fyrstu tvo leiki í deildinni.

Hún hefði þó fremur kosið sigur í fyrsta leiknum.

Þetta hefur byrjað ágætlega, hjá mér persónulega. En stoðsending í fyrsta leik gerir kannski ekki mikið ef þú vinnur ekki leikinn. Ég hefði frekar tekið sigurinn en stoðsendingu, segir Alexandra.

Hún er liðsfélagi þeirra Kötlu Tryggvadóttur og Guðnýjar Árnadóttur hjá sænska liðinu og kann vel við hafa aðra íslenska leikmenn með sér.

Mér líður ótrúlega vel. Það hafa allir komið mér rosalega vel inn í þetta og halda voðalega vel utan um mig. Íslendingarnir eru búnir taka mig inn í fjölskylduna, þetta er rosalega gott. Þetta er svolítið fjölskylduumhverfi og maður finnur hvað Íslendingarnir standa vel saman og þétt við bakið á hvorum öðrum, segir Alexandra, sem hefur ekki haft íslenska liðsfélaga áður á tíma sínum í Þýskalandi og á Ítalíu.

Þetta er frábrugðið lífinu á Ítalíu og í Þýskalandi. Ég er ekki vön þessu. Ég er vön því vera eini Íslendingurinn, með enga aðra í kringum mig, svo mér líður svolítið eins og ég heima, segir Alexandra.

Ekkert vandamál spila á Valbjarnarvelli

Einhverjir leikmenn æfðu í gær á meðan aðrir fóru í ræktina eftir átök með félagsliði um helgina. Þá æfði allur hópurinn saman á Þróttarvelli í dag.

Hópurinn kom saman í gær og þeir sem voru kannski spila minna æfðu í gær og svo fyrsta alvöru æfingin í dag. Það er flott æfing í dag, ég held allir geti verið sammála um það, góð ákefð og góður fókus, segir Alexandra. Hún segir þá rótið á liðinu, sem spilar á heimavelli Þróttar í komandi leikjum, ekki hafa áhrif.

Nei, nei. Við höfum allar spilað á Íslandi og spilað á öllum þessum völlum hérna heima. Svo sjáum við Laugardalsvöllinn þarna hinu megin, okkur líður bara vel, segir Alexandra.

Missir af Glódísi

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir mun ekki spila komandi leiki. Hún hefur aldrei misst úr landsleik vegna meiðsla og því eilítið sérstakt mæta til leiks með landsliðinu og hún fjarverandi.

, auðvitað. Það er svakalegur missir fyrir okkur, fyrirliðinn okkar og leiðtogi liðsins. Það bara gefur öðrum tækifæri til stíga upp og taka við keflinu, segir Alexandra.

Ísland er með eitt stig í Þjóðadeildinni eftir fyrstu tvo leikina við Sviss og Frakkland ytra í síðasta mánuði. Stefnan er fjölga stigunum í komandi heimaleikjum við Noreg og Sviss.

Við hefðum viljað hafa náð í fleiri stig í síðasta glugga. En ef og hefði. Auðvitað förum við inn í leikinn á föstudaginn til sækja þrjú stig. Við byrjum þar og sjáum svo með þriðjudaginn, segir Alexandra.

Viðtalið sjá í spilaranum ofan.

Nafnalisti

  • Alexandra Jóhannsdóttirlandsliðskona
  • Fiorentinaítalskt félag
  • Glódíseftirbátur margra annarra Evrópuríkja
  • Glódís Perla Viggósdóttirlandsliðskona
  • Guðný Árnadóttirhægri bakvörður
  • Katla Tryggvadóttirefnilegasti leikmaður deildarinnar í fyrra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 568 eindir í 39 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 39 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.