Ekki náð að góma þjófa í dular­gervi

Bjarki Sigurðsson

2025-03-28 23:06

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þjófar, dulbúnir sem ferðamenn, hafa herjað á túrista bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi síðustu daga. Lögreglufulltrúi segir þjófana vel skipulagða og enginn þeirra hefur verið staðinn verki.

Í dag varaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við þjófum sem hafa herjað á ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur. Talið er sami hópur hafi fyrir skömmu einnig stolið af ferðamönnum við Þingvelli.

Meðal aðferða hópsins er finna ferðamenn sem eru með bakpoka, barnavagn eða annað slíkt, og bjóðast til þess taka mynd af þeim, til dæmis með Hallgrímskirkju í bakgrunninum. Þegar þeir leggja bakpokann frá sér skilja barnavagninn eftir til stilla sér upp fyrir myndina fer einhver annar í hópnum og tekur það sem er verðmætt úr pokanum. Síðan eru þeir á bak og burt.

Djarfir og í dulargervi

Þjófarnir eru taldir af erlendu bergi brotnir og dulbúa sig sem túristar. Þeirra falla því vel inn í hópinn á þessum vinsælu ferðamannastöðum.

Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir þjófana oftast vilja komast í peninga og greiðslukort. Þá nota þeir einnig djarfari aðferðir en lýst var áðan.

Tveir, jafnvel fleiri, allt upp í fimm, blanda sér í hóp ferðamanna. Elta kannski fólk sem er með bakpoka og ferðatöskur og ætlar á sinn íverustað. Stundum þarf lyklabox og kóða til komast inn. Þeir bíða þar og þykjast eiga fara þangað inn líka. Í þessu öllu saman er búið fara í bakpoka eða vasa og stela, segir Guðmundur Pétur.

Leita allra upplýsinga

Lögreglan taki við öllum upplýsingum um hópinn.

Við erum sum vara við þessu og um leið reyna vitneskju um hvar þetta fólk heldur sig svo við getum talað við það, segir Guðmundur Pétur.

Hafið þið yfirheyrt eða handtekið einhverja sem þið teljið tengjast þessum hópi?

Nei, ekki enn þá. Þess vegna kom tilkynningin. Okkur vantar finna fólkið.

Nafnalisti

  • Guðmundur Pétur Guðmundssonlögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 345 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.