Sæki samantekt...
Jarðskjálfti fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Fyrstu tölur gefa til kynna að hann hafi verið enn öflugri sá sem sem mældist fyrr í dag upp á 3,6 stig.
„Fyrstu tölur hjá okkur benda til þess að skjálftinn hafi verið rétt um fjóra. Skjálftinn er á sama stað og fyrr í kvöld á milli Trölladyngju og Kleifarvatns,“ segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
„Þetta eru svokallaðir gikkskjálftar sem helgast af spennulosun í jarðskorpunni. Virknin var út af Eldey en hún hefur færst í átt að Trölladyngju og Kleifarvatni núna,“ segir Steinunn.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Nafnalisti
- Steinunn Helgadóttirdóttir Helga Þórs
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 109 eindir í 7 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 85,7%.
- Margræðnistuðull var 1,47.