Ætlar að gefa kerfinu verk­færi til að taka á eltihrellum

Margrét Helga Erlingsdóttir

2025-03-24 19:36

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem falið verður yfirfara lög um nálgunarbann og nýtingu ökklabands til auka öryggi brotaþola. Hún segir umsáturseinelti mun útbreiddara vandamál en fólk almennt geri sér grein fyrir og hún vill gefa kerfinu tæki og tól til taka fast á þeim. Á síðasta ári voru 79 beiðnir um nálgunarbann lagðar fram.

Starfshópnum er ætlað yfirfara gildandi lög um nálgunarbann og brottvísun á heimili og leggja til breytingar. Honum er gert skila tillögum um mitt þetta ár.

Þetta er miklu útbreiddara vandamál en við gerum okkur grein fyrir, það er erfitt nálgunarbann í núverandi kerfi, þetta segir lögreglan mér líka sem gjarnan vill gera betur í þessum málaflokki og síðan hitt, það hefur haft allt of litlar afleiðingar þegar brotið er gegn nálgunarbanni og það á auðvitað ekki líðast í íslensku samfélagi fólk geti ekki verið öruggt á eigin heimili, eða á eigin vinnustað vegna þess það verið hringja, elta, sitja um, með ónot, ónæði, ógnanir og jafnvel ofbeldi. Við þurfum gera betur hvað þetta varðar og vinnan miðar því, segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Árið 2023 voru skráðar 92 beiðnir um nálgunarbann hjá lögreglu og í fyrra voru þær 79. Horft verður til norskrar löggjafar við breytingar á hinni íslensku.

Fólk á ekki þurfa búa við það verða í langan tíma fyrir ónæði, ógnunum, hótunum og raski á sínu lífi vegna þess lögin okkar og kerfin hafa ekki verkfærin til taka á því. Markmið mitt er breyta þessu.

Í hópnum munu sitja Anna Barbara Andradóttir frá ríkissaksóknara, Kristín Alda Jónsdóttir frá ríkislögreglustjóra, Hildur Sunna Pálmadóttir frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Kvennaathvarfið-Linda Dröfn Gunnarsdóttir frá Kvennaathvarfinu, Jakob Birgisson fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins og Drífa Kristín Sigurðardóttir er formaður hópsins.

Hugnast taka upp notkun ökklabands

Ríkissaksóknari gaf í fyrra út þau tilmæli nota ætti öklaband í auknum mæli þegar brotið væri ítrekað gegn nálgunarbanni. Dómsmálaráðherra hugnast vel nota slíkt í auknum mæli.

Það er verið elta fólk uppi, sitja um það, mæta á vinnustað, hringja á öllum tímum sólarhrings, senda skilaboð. Þetta er auðvitað ekki í lagi. Þannig ökklabönd eiga og geta hjálpað til við koma í veg fyrir svona háttsemi þegar nálgunarbanni er komið á. Það sem við ætlum okkur fram með þessu er löggjöfin verði skýr og framkvæmdin verði skýr. Svona háttsemi á ekki líðast í samfélaginu.

Nafnalisti

  • Anna Barbara Andradóttirsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara
  • Drífa Kristín Sigurðardóttirlögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu
  • Hildur Sunna Pálmadóttirlögfræðingur
  • Jakob Birgissonuppistandari
  • Kristín Alda Jónsdóttir
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttirframkvæmdastýra Kvennaathvarfsins
  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttirþingmaður Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 440 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 89,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.