Saka Pútín um að draga lappirnar

Samúel Karl Ólason

2025-04-04 09:56

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Yfirvöld í Bretlandi og Frakklandi sökuðu í morgun Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um draga lappirnar í friðarviðræðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Bretar og Frakkar krefjast skjótra viðbragða frá Pútín vegna viðleitni Bandaríkjamanna til koma á vopnahlé.

Rússar hafa hafnað tillögu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um almennt þrjátíu daga vopnahlé. Seinna meir gerði Pútín samkomulag við Bandaríkjamenn um vopnahlé á Svartahafi, í skiptum fyrir niðurfellingu refsiaðgerða og aðgang mörkuðum heimsins fyrir landbúnaðarvörur, svo eitthvað nefnt.

Sjá einnig: Vilja aðstoð við útflutning og losna við þvinganir áður en þeir hætta árásum

Þetta samkomulag á fela í sér Rússar geri ekki árásir á orkuinnviði Úkraínu og Úkraínumenn hafa samþykkt hætta árásum á orkuinnviði í Rússlandi og hernaðarskotmörk á Svartahafi.

Rússneskum sprengjum hefur þó áfram rignt yfir Úkraínu og meðal annars á orkuver og aðra orkuinnviði. Að minnsta kosti fimm létu lífið og 32 særðust þegar rússneskur sjálfsprengidróni lenti á fjölbýlishúsi í Karkív.

Við sjáum þig

Utanríkisráðherra Bretlands og Frakklands, þeir David Lammy og Jean-Noel Barrot, lýstu því yfir við blaðamenn í höfuðstöðvum NATO í morgun Pútín væri draga viðræður á langinn.

Í millitíðinni héldi Pútín áfram varpa sprengjum á óbreytta borgara í Úkraínu og orkuinnviði.

Við sjáum þig Vladimír Pútín. Við vitum hvað þú ert gera, sagði Lammy.

Sjá einnig: Rússar sagðir vilja draga viðræður á langinn

Barrot sló á svipaða strengi og benti á Úkraínumenn hefðu samþykkt vopnahlésskilmála Bandaríkjamanna fyrir nokkru síðan og Rússar skulduðu Trump svör.

Rússar fara þvers og kruss, halda áfram árásum á orkuinnviði, halda áfram stríðsglæpum sínum. Það þarf , það þarf nei. Það þarf skjót svör, sagði Barrot.

Sjá einnig: Trump mjög reiður út í Pútín

Utanríkisráðherrarnir hétu einnig halda áfram stuðningi við Úkraínu og aðstoð við byggja upp herafla ríkisins. Það er talið besta öryggistrygging Úkraínu sem er í boði, þar sem Trump hefur tekið aðild NATO af borðinu.

Erindreki Pútíns vill tíma

Kirill Dmitriev, sérstakur erindreki Pútíns, var staddur í Bandaríkjunum í gær þar sem hann ræddi við erindreka Trump. Eftir fundinn sagði hann frekari funda væri þörf til leysa ýmis ágreiningsefni.

Hann sagði viðræðurnar vera jákvæðar og uppbyggilegar en þær myndu taka tíma. Þá kvartaði hann yfir meintri skipulagðri herferð sem ætlað væri skemma samband Rússlands og Bandaríkjanna.

Reuters hefur eftir Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, tal Pútíns um friðarviðræður væru innantóm orð. Forsetinn rússneski væri vinna sér inn tíma með því breyta kröfum sínum og leggja fram nýjar kröfur.

Trú ráðamanna í Evrópu á það ríkisstjórn Trumps geti stillt til friðar til langs tíma hefur dregist verulega saman á undanförnum vikum, frá því Trump tók við embætti.

Síðan þá hefur hann lagt mikla áherslu á Úkraínumenn greiði Bandaríkjunum á einhvern hátt fyrir þá hernaðaraðstoð sem ríkið hefur fengið.

Trump hefur einnig ítrekað talað máli Rússa og Vladimírs Pútin, forseta Rússlands, og hafa Bandaríkjamenn heilt yfir beitt Úkraínumenn miklum þrýstingi.

Á sama tíma hafa Trump og erindrekar hans talað fyrir því fella niður refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum, í skiptum fyrir lítið sem ekki neitt.

Nafnalisti

  • Annalena Baerbockutanríkisráðherra Þýskalands
  • David Lammyþingmaður breska Verkamannaflokksins
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Jean-Noel Barrotráðherra stafrænna mála í Frakklandi
  • Kirill Dmitrievyfirmaður rússneska fjárfestingasjóðsins RDIF sem hefur fjármagnað verkefnið
  • Utanríkisráðherra BretlandsDominic Raab
  • Vladimír Pútínforseti
  • Vladimírs Pútin

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 560 eindir í 32 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 75,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.