Ása Steinars og Leó greina frá kyninu

Svava Marín Óskarsdóttir

2025-04-04 09:52

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ferðaljósmyndarinn og áhrifavaldurinn Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar Leo Sebastian Alsved eiga von á sínu öðru barni saman. Hjónin tilkynntu í færslu á Instagram í gær þau ættu von á dreng.

Fyrir eiga Ása og Leo soninn Atlas, sem er fæddur í janúar árið 2022.

Í færslunni sjá fjölskylduna sitja við borð úti í snæviþakinni víðáttu á Vestfjörðum, með stóra hvíta köku fyrir framan sig. Þegar hjónin skáru kökuna kom í ljós kakan væri blá innan.

Við erum ekki sammála um kynið, ég er alveg sannfærð um ég strákamamma, segir Ása sem hafði rétt fyrir sér. Leo hélt aftur á móti þau ættu von á stelpu, sem var líka það sem hann hélt þegar þau áttu von á Atlasi.

Með milljón fylgjendur á samfélagsmiðlum

Ása Steinars er einn stærsti áhrifavaldur Íslands og er með um 1,4 milljón fylgjendur á Instagram. Ása starfar við ljósmyndun og flakkar vítt og breitt um heiminn í starfi sínu og deilir því á samfélagsmiðlum sínum.

Ása var í Íslandi í dag árið 2019 og var þá með um 130 þúsund fylgjendur. Þrátt fyrir það var hún ekki sérlega þekkt hér á landi. Síðan þá hefur fylgjendafjöldinn margfaldast og hún orðið þekktari stærð hér á landi.

Nýlega hefur Ása staðið í dómsmálum við bandaríska markaðsfyrirtækið Tripscout sem hafði notað og deilt efni hennar án hennar leyfis. Ása stefndi fyrirtækinu vegna brota á höfundarrétti og höfðaði fyrirtækið í kjölfarið gagnsókn á hendur henni. Gagnkröfum Tripscout var á endanum vísað frá en fyrra málið stendur enn yfir.

Nafnalisti

  • Ása Steinarsdóttirferðaljósmyndari
  • Ási Steinarbirti
  • Leo18 mánaða sonur sinn
  • Leo Sebastian Alsved

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 257 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 81,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.