Íþróttir

Sölvi Geir ekki í miðvarðaleit

Valur Páll Eiríksson

2025-04-04 09:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sölvi Geir Ottesen hefur skilning á ákvörðun Jóns Guðna Fjólusonar leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Jón Guðni er annar miðvörður Víkinga sem hættir iðkun knattspyrnu á skömmum tíma en þrátt fyrir það eru Víkingar vel mannaðir í öftustu línu.

Jón Guðni tók ákvörðun um hætta í vikunni. Hann hafði verið meiddur í um tvö ár áður en hann gekk í raðir Víkinga í fyrra en náði spila 31 leik með liðinu í öllum keppnum. Hnén hafa hins vegar verið stríða honum í vetur og hann í raun sárþjáður.

Eftir frí hefur hann verið í vandræði með hnéin á sér. Eftir Panathinaikos-leikina fór hann í sprautu til lina þjáningum hans. Hann var mjög þjáður og gat ekki beitt sér fullu. Batinn gekk mjög hægt eftir það og síðan þá hefur hann ekkert náð sér almennilega, segir Sölvi Geir um Jón Guðna í samtali við íþróttadeild.

Hann hefur rætt við okkur Kára um framhaldið og hefur tekið sér tíma í það taka þessa ákvörðun. Ég skil ákvörðunina rosalega vel. Það er ekkert grín, ég þekki það sjálfur, spila í gegnum svona mikinn sársauka. Mér finnst það bara vel gert hjá honum. En auðvitað er mikill missir af Nonna, segir Sölvi Geir sem sjálfur glímdi við þrálát bakmeiðsli í gegnum lunga fótboltaferils síns.

Róbert og Sveinn fylla í skarðið

Jón Guðni er annar miðvörðurinn, og í raun annar örvfætti miðvörðurinn í liði Víkings sem hættir á skömmum tíma. Halldór Smári Sigurðarson, herra Víkingur, gerði slíkt hið sama fyrir skemmstu. Þrátt fyrir brotthvarf þeirra segist Sölvi ekki á flæðiskeri staddur hvað varnarlínuna varðar.

Við fengum auðvitað Róbert Orra (Þorkelsson) inn í þetta og Sveinn Gísli Þorkelsson er kominn með stærra hlutverk líka í liðinu. Við misstum tvo vinstri fótar hafsenta en erum með Svein Gísla og Róbert. Við ekkert í neinni krísu. Við erum ennþá með fjóra sterka hafsenta. Þó það vissulega missir af þessum tveimur strákum og karakter þeirra, segir Sölvi.

Engin þörf fyrir gömlu hundana á æfingum

Svo þið Kári Árna þurfið ekkert stíga inn og manna miðvörðinn á æfingum?

Nei, alls ekki, segir Sölvi Geir og hlær. Við erum með unga leikmenn líka. Davíð Helgi, til mynda sem hefur stórt hlutverk með U19 ára landsliðinu. Þannig við erum vel settir með vinstri fótar hafsentum í liðinu.

Þannig það stendur ekki leit eftir varnarmanni vegna brotthvarfs tvímenninganna?

Nei. Við erum ekkert leita neitt því akkúrat núna. En erum alltaf með augun opin fyrir spennandi leikmönnum. Það breytist ekkert. En við erum ekki leita neinum til fylla þessar stöður heldur aðrir leikmenn stærra hlutverk, segir Sölvi.

Víkingar hefja leik í Bestu deild karla á mánudagskvöldið þegar ÍBV heimsækir Víkina. Fyrsta umferð deildarinnar fer af stað annað kvöld er Breiðablik og Afturelding eigast við í Kópavogi.

Fyrsta umferð Bestu deildar karla

Laugardagur 5. apríl

19:15 Breiðablik-Afturelding (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur 6. apríl

14:00 Valur-Vestri (Stöð 2 BD)

16:15 KA-KR (Stöð 2 Sport 5)

19:15 Fram-ÍA (Stöð 2 Sport 5)

Mánudagur 7. apríl

18:00 Víkingur R.-ÍBV (Stöð 2 BD)

19:15 Stjarnan-FH (Stöð 2 Sport 5)

21:25 Stúkan (Stöð 2 Sport 5

Nafnalisti

  • Davíð Helgi
  • Halldór Smári Sigurðarsonleikmaður
  • Jón Guðni Fjólusonlandsliðsmaður
  • Káribjörgunarsveit
  • Kári Árna
  • Nonnihuldumaður
  • Róbertfyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands
  • Róbert OrriPatreksfirðingur
  • Sölvi Geir Ottesenaðstoðarþjálfari Víkings
  • Stöð 2 BD
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum
  • Sveinnsonur Björns Jónssonar, ritstjóra, alþm. og ráðherra, og k.h., Elísabetar G. Sveinsdóttur húsfreyju, systur Hallgríms biskups, og Sigríðar, móður Haraldar Níelssonar guðfræðiprófessors
  • Sveinn Gísli Þorkelssonvarnarmaður
  • ValurÍslandsmeistari
  • Víkingurknattspyrnufélag
  • Víkingur R.var í láni hjá Val

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 569 eindir í 48 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 36 málsgreinar eða 75,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.