Íþróttir

„Skandall“ í gær en upp­selt í dag

Aron Guðmundsson

2025-04-04 09:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Uppselt er á leik Íslands og Noregs í Þjóðadeild kvenna í fótbolta sem fram fer á Þróttaravellinum seinna í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ núna í morgun en landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Hallgrímsson sem og fyrirliði liðsins í leik dagsins, Ingibjörg Sigurðardóttir lýstu yfir vonbrigðum sínum með það á blaðamannafundi í gær ekki væri orðið uppselt á leikinn.

Um er ræða tvö landslið ofarlega á styrkleikalista FIFA með margar þekktar knattspyrnustjörnur innan sinna raða en liðin tvö munu einmitt einnig mætast á Evrópumótinu í Sviss í sumar.

Fyrir leik dagsins situr Noregur í 2. sæti riðilsins í A-deildinni með þrjú stig loknum fyrstu tveimur umferðum keppninnar. Ísland er í þriðja sæti með eitt stig og getur með sigri í dag lyft sér upp í annað sæti riðilsins.

Leikur Íslands og Noregs hefst klukkan korter í fimm í dag. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.

Nafnalisti

  • Ingibjörg Sigurðardóttirlandsliðskona
  • Þorsteinn Hallgrímssonsérfræðingur Golfstöðvarinnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 155 eindir í 7 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 5 málsgreinar eða 71,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,83.