Stjórnmál

Stefán Einar svarar fyrir sig: „Fólk þarf ekki að mæta og það þarf ekki að hlusta”

Ritstjórn DV

2025-04-02 13:25

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stefán Einar Stefánsson, þáttastjórnandi á mbl.is, segir í hans huga aðeins ein dauðasynd. Hún er vera leiðinlegur, segir hann í færslu á Facebook.

DV fjallaði í gær um bjórkvöld hlaðvarpsþáttarins Þjóðmála þar sem þeir Stefán Einar, Andrés Magnússon og Gísli Freyr Valdórsson fóru mikinn. Hæddust þeir til mynda Flokki fólksins og ráðherrum hans og töluðu mikið um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur.

Líktu þeir Ásthildi Lóu við heimsfrægan eltihrelli auk þess fara rangt með staðreyndir í máli hennar. Hæddust þeir sömuleiðis tungumálakunnáttu Guðmundar Inga og sögðu hann varla læsan.

Sjá einnig: Starfsmenn Morgunblaðsins létu vaða á súðum á bjórkvöldiSögðu Guðmund Inga varla læsan og líktu Ásthildi Lóu við frægan eltihrelli

Margir létu þremenningana heyra það í athugasemdakerfi DV og gerði Vísir umræðurnar umtalsefni í frétt í morgun. Stefán Einar deilir þeirri frétt þar sem hann svarar fyrir sig.

Í mínum huga er aðeins ein dauðasynd. Hún er vera leiðinlegur. Ég ætla ekki láta hana verða mér aldurtila, segir hann.

Bjórkvöld Þjóðmála eru skemmtidagskrá, galgopalegur gálgahúmor sem kann vel fara fyrir brjóstið á einhverjum. En við því eru aðeins tvær lausnir og einfaldar. Fólk þarf ekki mæta og það þarf ekki hlusta, segir hann og endar færslu sína á þessum orðum:

En hugsið ykkur gott fólk ef ekki mætti lengur gera grín ráðherrum og næturbrölti þeirra við útihurðir ókunnugra? Við viljum alveg örugglega ekki lifa í svo forpokuðu og húmorslausu samfélagi. Eða hvað?

Margir taka undir með Stefáni Einari, en ekki allir, til dæmis rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson sem sat eitt sinn á þingi fyrir Samfylkinguna.

Hér vitna í gamlan Matthildarþátt og ritstjórann ykkar (sem er í raun og veru oft fyndinn): Þetta hefði verið fyndnara ef það væri húmor í því, sagði Guðmundur.

Stefán Einar svarar fyrir sig og dregur ekkert undan. Hvaða vitleysa. Það mæta fleiri á hvert bjórkvöld hjá okkur en þeir sem kaupa bækurnar þínar. Heldur þú það gerist vegna húmorsleysis?

Nafnalisti

  • Andrés Magnússonframkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Gísli Freyr Valdórssonfyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra
  • Guðmundur Andri Thorssonfyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar
  • Guðmundur Ingifyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar
  • Stefán Einar Stefánssonfyrrverandi fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 358 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 95,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.