Grunaði ekki að fíflalætin myndu ferðast svona víða

Oddur Ævar Gunnarsson

2025-03-27 11:38

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Edda Björgvinsdóttir leikkona segist ekki hafa grunað eigin fíflalæti myndu ferðast svona víða. Þar vísar Edda til myndbanda sinna sem slegið hafa í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hún bregður sér í hlutverk eldri borgaranna þeirra Gyðu og Guðríðar sem hneyksla sig á hinum ýmsu þjóðfélagsmálum.

Sko þetta eru náttúrulega tóm fíflalæti sem enda alltaf einhvern veginn. Maður hefur ekki grun um það hvað fíflalætin manns ferðast víða, filterar í Snappi geta greinilega gert mann áhrifavaldi, segir skellihlæjandi Edda Björgvins í samtali við Vísi.

Edda brá sér í hltuverk Guðríðar í nýjasta myndbandinu þar sem hún gerði stólpagrín útgerðinni. Þar áður birti Edda, eða öllu heldur Guðríður, myndband um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur en það allra fyrsta sem birtist 3. mars síðastliðinn var um áhyggjur þingmannsins Jóns Péturs Siemsen af áföstum töppum á plastflöskum.

Svo er hugsanlega von á systur hennar líka. Þarna eru þær Guðríður og Gyða sem deila öllum skoðunum. Svo er þetta bara lífrænt, maður veit ekkert hvort það komi nokkuð meira frá þeim systrum, segir Edda sem er enn hlæjandi. Hún segir aldrei vita.

Ég vildi ég hefði það úthald en ef það koma svona stórgjafir eins og grenjuskjóður í útgerð eða alþingismaður sem leggur sig virkilega fram við eyða tíma Alþingis í plasttappa. Því svona stórgjafir þær kveikja á ýmsu þegar maður er með góðan filter. Þannig maður veit aldrei hvað gerist næst, það eru þessar stórgjafir þjóðarinnar sem kveikja í Guðríði gömlu.

Upplifir enga pressu

Edda segist alveg gapandi hissa á því hvað hún deili húmor með stórum hluta þjóðarinnar. Hún hafi alls ekki átt von á viðbrögðunum við myndböndunum en þúsundir bregðast við myndböndunum og hundruð skilja eftir sig athugasemd þar sem viðkomandi lýsir því oftar en ekki hann skellihlæjandi yfir myndböndunum. Edda segist ekki finna fyrir pressu vegna þessara vinsælda.

Sem betur fer þá upplifi ég aldrei pressu heldur frekar gjafir, ég bara hef ofsa trú á íslensku samfélagi, halda áfram færa Guðríði efni sem kveikir svona ofboðslega í henni. Ég hef þá trú án þess ég lofi neinu.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Edda Björgvinsdóttirleikkona
  • Eddinafn
  • Eddi Björgvinmæðginin
  • Guðríðuruppi
  • Gyðaóveðurslægð
  • Jón Pétur Siemsen

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 368 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 89,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.