Stjórnmál

Örugg skref fyrir Ís­land í alþjóða­sam­félaginu

Dagbjört Hákonardóttir

2025-03-06 09:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þegar minnst er á Norðurlandaráð í daglegu tali verður mögulega einhverjum fyrst hugsað um bókmenntir og verðlaunahátíðir. Það er ekki óeðlilegtsameiginlegur menningararfur á Norðurslóðum hefur í gegnum tíðina gert okkur Norðurlöndin bestu bandamönnum hvors annars og það er ekki ódýr vinskapur á óróatímum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tilkynnt um fyrirhugaða endurskoðun öryggis- og varnarmálastefnu fyrir Ísland með stofnun þverpólitískrar nefndar sem ber fagna. Af því tilefni ber ítreka mikilvægi þess norrænar áherslur fái notið sín með hliðsjón af gríðarlega öflugri vinnu sem fer fram á vettvangi Norðurlandaráðs og NB8, og þeim lærdómi sem verður draga frá okkar öflugustu bandamönnum og samstarfsþjóðum.

Við erum öfundsverður félagsskapur, sem helgast af því það hefur verið lögð rækt við hann. NB8samstarfið svokallaða, sem hefur einnig verið í brennidepli að undanförnu, sameinar jafnframt Norðurlöndin fimm og Eystrasaltsríkin þrjú. Fyrr á þessu ári komu NB8 ríkin sér saman um unnar yrðu tillögur um eflingu öryggis- og varnarsamstarfs sín á milli. Með þessu sýna leiðtogar ríkjanna ekki bara mikinn vilja til styrkja sameiginlegar varnir og tryggja stöðugleika á svæðinu, því samtakamátturinn og samstaðan vekur athygli í allar áttir.

Nýverið fór fram febrúarfundur í störfum Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Öryggis- og varnarmál eru þar á allra vörum, og við getum notið þess búa gríðarlegri þekkingu bandamanna okkar sem eiga landamæri Rússlandi sem við verðum nýta okkur inn í mótun nýrrar öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland. Til mynda var haldin málstofa um skuggaflota Rússlands í Eystrasaltshafi, þar sem skip úr ýmsum heimshlutum hafa siglt bókstaflega undir fölsku flaggi í ljósi viðskiptaþvingana sem beitt hefur verið gagnvart Rússum til flytja olíu og annan varning hafna á milli. Þetta eru vægast sagt illa útbúin skip og geta skapað gríðarlega hættu á umhverfisslysum. Það þarf ekki fjölyrða um hversu augljós hætta skapast af raski á sæstrengjum og mikilvægum leiðslum sem liggja á botni sjávar. Við fögnum því þess vegna sérstaklega norrænir bandamenn okkar vilji nýta vettvang Norðurlandaráðs til þess þétta raðirnar, sýna öðrum ríkjum öfluga samstöðu og hér innan okkar raða ekki bara búið formfesta varnarsamstarf okkar innan raða NATO með nýlegri inngöngu Svíþjóðar og Finnlands í varnarbandalagið.

Norðurlandaráð er ekki varnarbandalag, og getur sem slíkt ekki sinnt þeirri stoð í varnarstefnu Íslands líkt og NATO hefur gert frá stofnun þess. Eftir því sem þverpólitískt norrænt samstarf setur meiri fókus á net- og orkuöryggi, matvælaöryggi, sæstrengi, upplýsingaóreiðu, netárásir og það sem við köllum fjölþáttaógnir, verður vettvangurinn dýrmætari.

Ísland er sökum smæðar ekki í aðstöðu til sinna varnarmálum á eigin spýtur. Það skiptir öllu máli taka skrefin samstíga í stærri hópi þjóða sem deila hagsmunum okkar og gildum. Hér eigum við einnig horfa til þess Noregur stendur líkt og við utan Evrópusambandsins, en á með sambærilegum hætti og Ísland mikið undir þegar kemur varnarsamstarfi við Bandaríkin.

Norræn samstaða um öryggis- og varnarmál skiptir því öllu þegar rætt er um skipan okkar í alþjóðasamstarfi. Hugsanleg aðild Íslands Evrópusambandinu á ekki erindi inn í traust samtal norræna vettvangsins sem verið er byggja upp með hætti sem vekur heimsathygli. Við jafnaðarmenn höfum byggt fast á þeirri sýn farsælar samfélagsbreytingar verða byggjast á öruggum en um leið ákveðnum skrefum í þágu skýrt skilgreindra markmiða. Þau sjónarmið eiga líka við um erfiðar ákvarðanir fyrir alþjóðasamfélagið á óvissutímum, ekki síst þegar kemur uppbyggingu varnarinnviða. Heimsbyggðin horfir til Norðurlanda og félagshyggjusamfélaga þeirra. Forystu nýrrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem samanstendur af fulltrúum þriggja flokka sem sameinast um breiðar línur í íslenskri þjóðarsál, í þágu íslenskra heimila og fyrirtækja, er vel treystandi fyrir því verkefni.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.

Nafnalisti

  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 639 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.