Stjórnmál

Rússar skilji aðeins valdbeitingu

Ritstjórn mbl.is

2025-03-27 13:04

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fundur evrópskra leiðtoga sem styðja Úkraínu stendur yfir í París í Frakklandi þar sem rætt er hvernig búa megi sem best um hnúta úkraínskra öryggismála í aðdraganda hugsanlegs vopnahlés. Situr Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundinn fyrir Íslands hönd auk þess sem Volódimír Selenskí Úkraínuforseti er þar gestur.

Meðal þess sem liggur fyrir fundinum er greina hvers konar tryggingar fyrir öryggi Evrópuríkja unnt bjóða þjóðinni stríðshrjáðu þegar vopnahlé verður veruleika í þessu rúmlega þriggja ára langa stríði sem orðið er síðan Vladimír Pútín Rússlandsforseti skipaði herjum sínum láta til skarar skríða í febrúarlok 2022.

Alls sækja 27 þjóðarleiðtogar Parísarfundinn auk þess sem blaðamannafundur Macrons forseta stendur fyrir dyrum nú síðdegis.

Rússar setja skilyrði

Viðvera evrópsks herliðs í Úkraínu hefur verið rædd sem ein hugsanlegra öryggistrygginga sem enn fremur gæti sett Rússum stólinn fyrir dyrnar með annarri innrás í kjölfar vopnahlés. Framkvæmdin hefur þó ekki verið færð út í smáatriðum, en fundurinn í París er haldinn aðeins skömmu eftir yfirlýsing barst frá Hvíta húsinu í Washington fulltrúar Rússlands og Úkraínu hefðu samþykkt drög hugsanlegu vopnahléssamkomulagi á samningafundi með bandarískum fulltrúum í Sádi-Arabíu.

Hafa stjórnvöld í Moskvu og Kænugarði hvort tveggja staðfest þau tíðindi þótt þau fyrrnefndu hafi látið þær upplýsingar fylgja þau hefðu sett sín skilyrði, meðal annars þau Bandaríkin létti af viðskiptabanni sem hvíli á vörum tengdum landbúnaði í Rússlandi.

Macron með nýjan hjálparpakka

Sagði Macron Frakklandsforseti á blaðamannafundi í París í gær Evrópuþjóðirnar væru komnar á rekspöl með binda endi á innrásarstríð Rússa auk þess sem hann kynnti nýjan hjálparpakka Frakklands andvirði 2,2 milljarða evra sem jafngildir rúmum 315 milljörðum íslenskra króna.

Kvaðst Selenskí Úkraínuforseti vænta sterkra ákvarðana af fundinum og klykkti út með því í ummælum sínum Moskva skildi engin skilaboð önnur en þau sem byggð væru á valdbeitingu.

Nafnalisti

  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Macronforseti Frakklands
  • Macron Frakklandsforsetiekki par
  • Macronseitt merkið um það
  • Vladimír Pútínforseti
  • Volódimír Selenskí

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 302 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 81,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.