Heilsa og lífsstíll

Notar efni frá fínustu verslun Mílanó

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 10:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Berglind Óskarsdóttir fatahönnuður stofnaði barnafatamerkið Bibi & Bella árið 2019 í Mílanó á Ítalíu. Fyrstu viðtökurnar voru góðar og seldist allur lagerinn fljótt upp. Stuttu síðar hófst heimsfaraldurinn og Berglind ákvað hvíla merkið í svolítinn tíma. Síðasta haust tók hún þá ákvörðun endurvekja merkið og verður hún með innsetningu í versluninni Evu á Laugavegi meðan á Hönnunarmars stendur. Þar búast við sjá skrautlegar flíkur sem saumaðar eru eftir sérpöntun á yngstu kynslóðina.

Ég er svakalega glysgjörn. Ég ætlaði alltaf verða gullsmiður en ég komst ekki inn. Ég var mjög vonsvikin á sínum tíma, segir Berglind og hlær. Ég fékk leika mér með skartgripi ömmu minnar og elska allt sem glitrar. Ég varð koma við öll efni og steina.

Bibi & Bella er lúxusmerki fyrir stúlkur á aldrinum 4-12 ára. Merkið býður upp á yfirhafnir og fylgihluti úr hágæðaefnum. Markmiðið er skapa tímalausar og draumkenndar flíkur sem bæði endast og erfast. Innblástur Berglindar kemur frá dúkkulísum, eldri skartgripum, ítölskum lúxus og gömlum ævintýrum.

Dóttir mín var lítil, ég var nýskriðin úr námi og farin hugsa hvað mig langaði gera í framhaldinu. Ég hafði verið skoða markaðinn og fannst stóru merkin vera farin bæta við sig svona fatalínum og mér fannst þetta áhugaverð nálgun fyrir mig, segir Berglind.

Við kynntum merkið með opnun í Mílanó sem gekk mjög vel. Allt seldist upp sem ég átti á lager. En tveimur mánuðum síðar kom heimsfaraldurinn og þá var fólk ekkert fara neitt fínt. Aðrir hlutir komu í kjölfarið og ég ákvað setja þetta á smá pásu.

Ekki tilbúin loka þessum kafla

Berglind hóf störf við markaðssetningu hjá skartgripafyrirtæki í millitíðinni. Hún segir það hafa verið mikinn lærdóm og þar hafi hún fengið kynnast annarri hlið.

En þetta var alltaf kalla á mig til baka og mig langaði klára hugmyndina, mér fannst ég ekki búin með þetta. Ég ákvað svo endurvekja þetta, segir Berglind.

Berglind býr enn þann dag í dag ásamt fjölskyldunni í Mílanó. Við erum enn hér úti og höfum verið í níu ár. Við fluttum upphaflega út vegna námsins míns og hér er ég enn. Börnin eru líka í sínum skólum og líður vel, segir hún. Ég oft spurninguna um hvenær ég ætli flytja heim. Ég veit það er með góðum huga gert, bætir hún við hlæjandi.

Síðasta haust ákvað Berglind ásamt klæðskeranum Lauru Bellati koma Bibi & Bellu aftur í gang. Fötin frá merkinu eru aðallega fínar yfirhafnir fyrir sérstök tilefni með skrautlegum bróderingum, handsaumuðu skrauti á flíkurnar og fylgihluti.

Við vinnum eins og klæðskerar, hönnunarferlið fer í gegnum mig en Laura saumar þetta óaðfinnanlega. Það skiptir mig miklu máli velja gæði fram yfir magn og með sérpöntunum skapast persónuleg nálgun við kúnnann.

Eftirsóttir Swarovski-steinar

Hverju fólk búast við frá þér á Hönnunarmars? Ég verð með nýja og eldri stíla til sýnis eins og skikkjukápur, kápur og fylgihluti, svarar Berglind.

Einnig verður hægt sérpanta flíkur frá Bibi & Bellu. Sem stendur er þetta sniðið hverjum og einum.

Fyrir hvaða tilefni hefur fólk verið versla frá ykkur?

Undanfarið hefur verið vinsælt panta föt fyrir brúðkaup. Við erum pantanir frá Mílanó, Íslandi og Frakklandi.

Það hjálpar til vera staðsettur í einni af tískuborgum heims mati Berglindar því aðgengið góðum efnum gæti varla verið betra.

Við verslum efni við eina fínustu efnabúð Mílanó. Allir steinar sem við notum í bróderingar eru Swarovski-steinar sem eru orðnir mjög eftirsóttir núna. Það er slegist um þessa steina. Ég versla þá í pínulítilli efnabúð þar sem þeir eru verndaðir eins og gull og það er alltaf gaman fara þangað, segir Berglind.

Hver eru framtíðaráformin? Halda áfram reyna stækka þetta litla ástríðuverkefni mitt. Við ætlum vera lengur úti og einbeita okkur núinu.

Opnunarboð verður þann 3. apríl frá kl. 1820 í versluninni Evu á Laugavegi.

Nafnalisti

  • Bellasystir
  • Berglind Óskarsdóttirfata og fylgihlutaahönnuði
  • BibiNetanjahú forsætisráðherra
  • Evaliður í stefnu félagsins
  • Laurabandarískur mömmubloggari
  • Lauru Bellati

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 739 eindir í 52 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 47 málsgreinar eða 90,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.