Efnahagsmál

Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa uppfærður

Seðlabanki Íslands

2025-03-31 16:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa í samræmi 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt reglugerðinni skal fjármálaeftirlitið halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa, birta opinberlega á vefsvæði Seðlabankans og uppfæra skal listann árlega.

Á listanum koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.

Að þessu sinni er um ræða breytingar á lista yfir ráðherra, lista yfir þingmenn, lista yfir sendiherra og staðgengla sendiherra og lista yfir íslenska fyrirsvarsmenn alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana, sbr. 2., 3., 7., og 9. gr. reglugerðarinnar.

Sjá nánar: Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 172 eindir í 6 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 4 málsgreinar eða 66,7%.
    • Margræðnistuðull var 1,65.