Viðskipti

Airbus var lengi búið að ganga á eftir Icelandair

Kristján Már Unnarsson

2025-04-03 20:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Tímamót urðu í sögu Icelandair þegar félagið fékk afhenta sína fyrstu Airbus-þotu undir lok síðasta árs. Aldrei fyrr hafði það gerst í sögu þessa stærsta flugfélags Íslendinga það keypti nýja farþegaþotu frá öðrum framleiðanda en Boeing.

Fjallað er um Airbus-þotur í rekstri íslensku flugfélaganna í níunda þætti Flugþjóðarinnar á Stöð 2. Eftir Icelandair valdi þær sem arftaka 757vélanna stefnir í þotur frá evrópska flugvélaframleiðandnum verði burðarásinn í farþegaflugi til og frá Íslandi.

Íslendingar höfðu áður kynnst Airbus-þotum í þjónustu Wow Air og Play. Íslandsflug varð þó fyrst íslenskra flugfélaga til reka þotur frá Airbus og skrá þær á Íslandi.

Í þættinum kemur fram Airbus hafi verið búið ganga lengi á eftir Icelandair. Aðstoðarforstjóri Airbus, Wouter Van Wersch, segir fyrirtækið hafa í langan tíma haft það markmið vinna með Icelandair.

Þessi nýja stefnumörkun Icelandair var staðfest með undirritun samnings Icelandair og Airbus sumarið 2023 um kaup og kauprétt á allt 25 þotum af gerðinni Airbus A 321 XLR. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, lýsti samningnum sem einni stærstu ákvörðun sem félagið hefði tekið í sögu sinni.

XLR stendur fyrir extra long range en fyrstu þotur þeirra gerðar fær Icelandair þó ekki fyrr en árið 2029. Fram afhendingu þeirra leigir félagið næstu árin þotur af gerðinni A 321 LR, eða long range.

Flugdrægi XLR verður 8.700 kílómetrar. Þótt flugdrægi LR-vélanna 1.300 kílómetrum styttra er það samt 7.400 kílómetrar, sem er nærri 200 kílómetrum lengra en gömlu Boeing 757-vélanna. Hér er því komið tæki sem getur leyst þær endanlega af hólmi í rekstri Icelandair.

Hér tíu mínútna upphafskafla þáttarins:

Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2 + geta séð þættina um Flugþjóðina í streymisveitu Stöðvar 2 hvar og hvenær sem er.

Í næsta þætti þriðjudagskvöldið 8. apríl verður fjallað um íslensku flugnýlenduna í Lúxemborg.

Nafnalisti

  • A 321 LRgerð
  • Airbusflugvélaframleiðandi
  • Airbus A 321 XLRgerð
  • Boeingbandarískur flugvélaframleiðandi
  • Bogi Nils Bogasonforstjóri Icelandair Group
  • Playíslenskt flugfélag
  • Wouter Van Werschaðstoðarforstjóri Airbus

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 314 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 94,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,88.